|
Söluumboð
|
|
í 9. grein laga um fasteigna-, fyrirtækja- og skipasölu kemur fram að
fasteignasali skuli gera skriflegan samning við þann er til hans leitar
um kaup eða sölu eignar eða aðara þjónustu. Samningurinn skal gerður
áður en fasteignasali tekur til við starfann. Í samningi skal tilgreint
hvaða verkefnum fasteigansali eigi að sinna, hver þóknun hans sé fyrir
starfann eða hvernig hún skuli ákveðin og hvaða útlagðan kostnað
viðsemjandinn eigi að greiða. Greina skal sérstaklega ef fasteignasali
hefur einn rétt til sölu eignar og í hve langan tíma sá réttur hans á
að standa.
|
|
|
Stimpil- og þinglýsingargjöld
|
Kaupandi greiðir stimpilgjöld af kaupsamningi, veðskjölum og afsali um leið og þau eru lögð inn til þinglýsingar en ef seljandi lætur umboðsmann undirrita skjöl fyrir sína hönd þarf hann að þinglýsa umboðinu og greiða þinglýsingargjald kr. 1.350. Fasteignasalan sér um þessa pappírsvinnu ef vill. Þinglýsing kaupsamnings kostar 0,4% af fasteignamati eignarinnar.
|
|
|
Aflýsing lána
|
|
Ef tilgreint er í kaupsamningi að seljandi skuli aflétta einhverjum áhvílandi lánum er vissara að huga að því strax, því það gæti tekið tíma. Kaupandi hefur heimild til þess að halda eftir greiðslu ef ekki er búið að aflýsa lánum á umsömdum tíma. Ef lán er greitt upp fæst bréfið afhent og passa þarf upp á að á það sé áritað að því megi aflýsa, þar sem það sé að fullu greitt. Síðan er það afhent hlutaðeigandi sýslumannsembætti til aflýsingar.
|
|
|
Geymið öll skjöl vegna sölunnar
|
|
Gætið réttar ykkar - forðist stimpilsektir - þinglýsið skjölum strax - leitið ráða ef vanda ber að höndum. Varðveitið gaumgæfilega öll skjöl sem snerta fasteignaviðskiptin, s.s. kaupsamning, afsal, veðskuldabréf, kostnaðaruppgjör, allar kvittanir vegna afborgana af lánum, greiðslu fasteignagjalda, húsgjalda o.fl.
|
|
|
Uppgjör fasteignagjalda og vaxta
|
|
Uppgjör vegna fasteignagjalda og vaxta af yfirteknum lánum miðast við afhendingar-dag, þ.e. seljandi greiðir þessi gjöld til þess dags. Kaupanda er heimilt að draga gjaldfallnar afborganir, vexti og kostnað, er seljanda ber að greiða, af þeirri útborgunargreiðslu sem fellur næst á eftir gjalddaga fasteignagjalda og yfirtekinna veðskulda. Uppgjör vegna þess fer fram á fasteignasölunni, annaðhvort við undir-ritun kaupsamnings eða við afsalsgerð.
|
|
|
Samþykki maka
|
|
Samþykki maka þinglýsts eiganda þarf fyrir sölu og veðsetningu fasteignar, ef fjölskyldan býr á eigninni eða ef eignin er notuð til atvinnurekstrar beggja hjóna eða annars þeirra.
|
|
|
Afhending og skil
|
|
Afhenda skal fasteignina á umsömdum degi og skila henni hreinni. Láta þarf lesa af rafmagns- og hitaveitumælum á afhendingardegi og tilkynna nöfn nýrra greiðenda. Seljanda ber að tilkynna húsfélagi um nýjan félagsmann og hann útvegar yfirlýsingu húsfélags og skal hann vera skuldlaus við hússjóð við sölu/afhendingu fasteignar.
|
|
|
|
Yfirlýsing húsfélags
|
|
Mikilvægt er að fyrir liggi yfirlýsing húsfélags m.a. um húsgjöld,
yfirstandandi eða væntanlegar framkvæmdir sem búið er að ákveða á fundi
húsfélags , stöðu eiganda gagnvart hússjóði og framkvæmdasjóði
húsfélags. Þarna er um mikilvægan þátt að ræða sem huga þarf vel að.
Það skiptir að sjálfsögðu kaupanda miklu að hafa þessar upplýsingar
réttar. Slíkar upplýsingar þurfa að liggja fyrir af hálfu
gjaldkera/formanns húsfélags og gæta þarf vel að því að upplýsingarnar
séu nýjar. Seljandi þarf einnig að staðfesta að þessar upplýsingar séu
réttar.
|
|
|
Skiptasamningur
|
|
Lögum samkvæmt eiga að vera til
skiptasamningar um öll fjölbýlishús. Fjölbýlishús eða fjöleignarhús
eins og þau heita í dag eru þær eignir sem hafa að geyma tvær eða
fleiri íbúðir. Nokkuð algengt er að skiptasamningur hafi ekki verið
gerður um fjöleignarhús. Þetta er sérstaklega algengt með eldri eignir.
Ef skiptasamningur hefur ekki verið gerður um eignina þegar hún er seld
er það kaupandinn sem sér um þetta þegar þar að kemur. Já, það borgar
sig að bretta upp ermarnar því algengt er að það taki allt að sex
mánuði að ganga frá skiptasamningi. Kostnaður við gerð skiptasamnings
greiðist af íbúðareigendum í viðkomandi fjöleignarhúsi.
|
|
|
|
|