|
Ef gallar á eigninni koma í ljós eftir afhendingu ber kaupanda að tilkynna seljanda slíkt strax. Að öðrum kosti getur hann fyrirgert hugsanlegum bótarétti sakir tómlætis. Ekki skal láta gera við hinn meinta galla án samráðs við seljanda. Ekki má halda eftir hærri greiðslu en sem nemur þeirri fjárhæð sem ætla má að kosti að bæta úr hinum meinta galla. Heppilegast er að ráðfæra sig við fasteignasöluna áður en gripið er til þess úrræðis að halda eftir greiðslu vegna hugsanlegs galla á fasteign. Þá er mikilvægt að kynna sér vel yfirlýsingu húsfélags varðandi fyrirhugaðar framkvæmdir á vegum þess áður en gengið er frá kaupsamningi. Geymið öll skjöl vegna fasteigna-kaupanna. Varðveita skal gaumgæfilega öll skjöl sem snerta fasteignaviðskiptin, s.s. kaupsamning, afsal, veðskuldabréf, kostnaðaruppgjör, allar kvittanir, afborganir af lánum, greiðslu fasteigna-gjalda, húsgjalda o.fl.
|