Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Tjarnartún 3
Mjög vel skipulögð 3-4 herbergja raðhúsaíbúð á einni hæð með þvottahúsi, geymslu og afar vönduðum sólskála á vinsælum stað í Naustahverfi. Eignin er samtals 105 fm. að stærð þar af er sólskálinn 10 fm. Steypt bílaplan er fyrir framan eignina og góð steypt/timbur verönd með geymsluskúr sem snýr til suðurs. Eignin skiptist í forstofu, geymslu, þvottahús, tvö svefnherbergi, baðherbergi stofu og eldhúsi í sameiginlegu rými auk sólskála.
Forstofa er með flísar á gólfi og þar er fataskápur.
Geymsla inn af þvottahúsi er einnig með flísar, góðum hillum og opnanlegu fagi. Hefur verið nýtt sem herbergi
Stofa er rúmgóð með parket á gólfi og þaðan er gengið í sólskála.
Eldhús er með parket á gólfi, góðri innréttingu með stæði fyrir uppþvottavél og bakaraofn í vinnuhæð. Flísar eru á milli efri og neðri skápa.
Sólstofa er vönduð með gólfhita, flísar á gólfi og þaðan er útgengt út á steypta verönd.
Þvottahús er með flísar á gólfi, stæði fyrir þvottavél og þurrkara og þaðan er aðgengilegt um fellistiga á geymsluloft sem er yfir allri íbúðinni.
Svefnherbergi eru tvö, bæði með parket á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi er rúmgott með flísar á gólfi, góðri innréttingu í kringum vask og skáp bakvið hurð, baðkari með sturtutækjum og upphengdu salerni.
Annað: -Sólstofa er með öryggis- eða brunagleri á vestur hlið hans
-Hitiþráður í rennum
-Lagt er fyrir heitum potti á verönd
-Mjög vinsæl staðsetning í Naustahverfi, stutt í leik- og grunnskóla
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955