Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala Heiðarlundur 3 C Um er að ræða góða fimm herbergja raðhúsaíbúð á tveimur hæðum á vinsælum stað í nálægð við leik- og grunnskóla og verslun. Eignin skiptist í forstofu, þvottahús, snyrtingu, eldhús, búr, stofu og borðstofu á neðri hæðinni og á efri eru fjögur svefnherbergi, lítil geymsla og baðherbergi. Fostofa með flísum á gólfi.
Þvottahús með flísum á gólfi, sér inngangur er inn um þvottahúsið og einnig innangengt úr forstofu. Góð innrétting með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, vaskur og opnanlegur gluggi.
Snyrting með flísum á gólfi og wc upphengt.
Eldhús með flísum á gólfi og flísar milli efri og neðri skápa. Stæði fyrir litla uppþvottavél í innréttingu, eldavél nýleg. Úr eldhúsi er lítið
búr með hillum.
Stofa og borðstofa með parketi á gólfi, útgengi úr stofu út á timburverönd til suðurs og þaðan út á lóð.
Geymsla er við og undir stiga. Stigauppganga rúmgóð með gólfteppi.
Svefnherbergin eru fjögur, öll eru þau með parketi á gólfi og er skápur í þremur þeirra. Úr hjónaherbergi er útgengi út á svalir til suðurs og úr einu herberginu er lítil geymsla.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggir að mestu. Góð innrétting við vask ásamt speglaskápum, góður fataskápur á baði, baðkar með sturtutækjum, wc upphengt og opnanlegur gluggi.
Annað: Nýtt þak og þakrennur 2020
Nýjir gluggar og gler sunnanmegin fyrirhugað er að skipta um á norðurhlið.
Stutt í leik- og grunnskóla, verslun og fl.
Barnvænt hverfi.
Eignin er til afhendingar í vor
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955