Fasteignasalan Byggð 464-9955 - EinkasalaRánargata 17
Um er að ræða fjögurra herbergja íbúð á neðri hæð í tvíbýli. Eigninni til heyrir góð bílastæði á suðausturhorni lóðar. Eignin skiptist í anddyri, fjögur svefnherbergi, sjónvarpshol, baðherbergi, stofu, eldhús, þrjár geymslur og sameiginlegt þvottahús.
Anddyri með parketi á gólfi.
Baðherbergi með glugga, flísar á gólfi og veggjum, sturtuklefi með rennihurðum, innrétting við vask.
Svefnherbergin eru þrjú, öll eru þau með parketi á gólfi. Fastur fataskápur í hjónaherbergi og laus fataskápur í einu herberginu.
Sjónvarpshol með parketi.
Stofa með parketi á gólfi, opið er að hluta inn í eldhús úr stofu og að hluta úr sjónvarpsholi.
Eldhús með flísum á gólfi, ágætis innrétting í eldhúsi með flísum milli efri og neðri skápa. Úr eldhúsi er farið inn í sameiginlegt
þvottahús og er þar útgengi út á lóð til norðurs. Innaf þvottahúsi er hægt að fara niður í geymslur þar sem innri geymslan tilheyrir íbúðinni (gömul kolageymsla)
Úr eldhúsi er einnig farið inn í litla forstofu og þaðan hægt að fara annars vegar út á timburverönd sem er einnig notaður sem inngangur í íbúðina og hins vegar í tvær geymslur. Önnur geymslan er mjög rúmgóð og er óupphitu. Þar er hurð út á lóð, sú geymsla þarfnast lagfæringar þar sem borið hefur á leka á vesturútvegg.
Geymsluskúr á lóð er um 15 fm, hann fylgir ekki nema um annað sé samið. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955