Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Bjarkarbraut 25 - 201, Dalvík
Um er að ræða góða 70,5 fm. þriggja herbergja íbúð á efri hæð í fjöbýli með svalir sem snúa til vesturs. Mjög góð staðsetning, stutt í skóla og fleira.
Eignin skiptist í forstofu, baðherbergi, tvö svefnherbergi, stofu, eldhús og geymslu. Sameiginleg geymsla á jarðhæð.
Forstofa með flísum á gólfi, fataskáp og opnu fatahengi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og votrými við vask og baðkar. Baðkar með sturtutækjum, góð innrétting við vask og opnanlegur gluggi. Stæði fyrir þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergin eru tvö, bæði eru þau með dúk á gólfi og fataskápum.
Stofa og eldhús með parketi á gólfi. Ágætis innrétting í eldhúsi með flísum milli efri og neðri skápa. Gengið er út á svalir til vesturs úr stofu.
Úr eldhúsi er
geymsla með glugga, þar eru hillur og innrétting með vask og lúga upp á geymsluloft.
Annað: Mjög gott kalt geymsluloft fyrir ofan hluta íbúðar
Sameiginleg geymsla á jarðhæð, þar er bæði rafmagntafla og vatnsinntak fyrir húsið
Bílastæði fyrir framan húsið
Frábær fyrstu kaup
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955