Fasteignasalan Byggð 464-9955 - EinkasalaTjarnarlundur 12 E
Um er að ræða þriggja herbergja íbúð á 3. hæð í fjölbýlishúsi. Íbúðin er skráð samtals 75,8 fm að stærð og að auki er sér geymsla í sameign á 1. hæð sem er um 6 fm. að stærð skv. eignaskiptayfirlýsingu og er ekki inni í birtum fermetrafjölda. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og stofu.
Forstofa með dúk á gólfi, fataskápur og opið fatahengi.
Eldhús með dúk á gólfi, borðkrókur, upprunaleg innrétting en er vel með farin. Flísar milli efri og neðri skápa.
Svefnherbergin eru tvö bæði með dúk á gólfi og fataskápum.
Baðherbergið með dúk á gólfi og hluta veggja, baðkar, lítil innrétting við vask og tengi fyrir þvottavél á baði.
Stofa með dúk á gólfi og útgengi út á svalir til vesturs með góðu útsýni.
Glæsilegt útsýni er úr eigninni sérstaklega til vesturs af svölum að Hlíðarfjalli og Súlum.
Annað: -Getur verið laus við kaupsamning
-Þak upprunalegt.
-Húsið málað að utan og múrviðgert 2021
-Gler og listar endurnýjað í íbúð og stigagang.
-Stutt í leik- og grunnskóla, verslun, íþróttasvæði KA og aðra þjónustu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955