Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
-------- Seld með fyrirvara ---------
Brekkugata 13 - 202Vel staðsett þriggja herbergja íbúð í fjölbýlishúsi alveg við miðbæ Akureyrar. Eignin er á 2. hæð með sameiginlegum inngangi efri hæðar og útgengt er um bakinngang á lóð til vesturs, samtals 74,8 fm. en þar af er íbúð 71,4 fm.Eignin skiptist í sameiginlegt anddyri, stofu, tvö svefnherbergi, eldhús, baðherbergi og geymslu.
Komið er inn í sameiginlegt anddyri og þaðan gengið inn í opið rými/hol þar sem er parket á gólfi. Tvö svefnherbergi eru af holi, annað sem snýr til austur og hitt til vesturs. Þá er stofa sem snýr einnig til austurs aðgengileg úr holi.
Eldhús er innst í eigninni, þar er hvít innrétting með rauðri bekkjarplötu og ljósum flísum milli efri og neðri skápa.
Baðherbergi er inn af eldhúsi, þar eru gráar flísar á gólfi og hvítar flísar á veggjum, sturtuklefi, innrétting með skápum í kringum vask, handklæðaofn og salerni.
Geymsla er svo við hlið eldhúss og þá er gengið út í sameiginlegan garð til vesturs.
Annað:-Eigninni fylgja tvær geymslur, önnur undir stiga á 2. hæð og hin staðsett á 1. hæð og gengið er í hana um hurð vestan við húsið og í gegnum sameignargeymslu
-Nýlega steyptar tröppur að inngangi
-Frábært tækifæri til útleigu
-Húsið stendur á eignarlóð
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955