Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Kjarnagata 63 - 107
--Eignin er seld með fyrirvara--Nýleg og glæsileg fjögurra herbergja íbúð í norðurenda á jarðhæð í fjölbýlishúsi með lyftu og sérinngangi af svalagangi. Eigninni fylgir bílastæði í bílakjallara með hleðslustöð sem getur fylgt. Svalir snúa vel við sólu eða til vesturs og er búið að teikna svalalokun á húsið. Björt íbúð með glugga til þriggja átta. Íbúðin skiptist í anddyri, baðherbergi með þvottaðstöðu, þrjú svefnherberg og samliggjandi eldhús og stofu.
Anddyri er með parket á gólfi og fataskáp á gangi.
Eldhús og stofa er í opnu rými. Í eldhúsi er góð innrétting með stæði fyrir ísskáp, uppþvottavél og bakaraofn í vinnuhæð. Hvítar flísar eru milli efri og neðri skápa.
Stofa er björt með parket á gólfi og úr henni er gengið út á svalir til vesturs þaðan sem er óhindrað útsýni til vesturs að Hlíðarfjalli og Súlum. Hljóðdempandi veggjaplötur eru á sjónvarpsvegg.
Svefnherbergi eru þrjú, öll með parket á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi er með gráar flísar á gólfi og á veggjum í kringum votrými, góð innrétting í kringum vask og stæði fyrir þvottavél og þurrkara.
Annað:-Samkvæmt húsreglum eru gæludýr leyfð í húsinu
-Hvítar innihurðir
-Gólfhiti í íbúð
-Hljóðdempandi plötur í lofti
-Mynddyrasími
-Ljósleiðari
-Hleðslustöð í bílakjallara getur fylgt
-Bílastæði er rúmgott
-Snjóbræðsla er í stæðum fyrir hreyfihamlaða, inngangsstéttir við hús og gangstétt meðfram bílastæðum og í sorpgerði.
-Sér geymsla í sameign er 8,7 fm.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955