Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Skálatún 29 - 103
Um er að ræða snyrtilega þriggja herbergja íbúð á neðri hæð í tengihúsi. Eignin er í nálægð við leik- og grunnskóla, verslun, golfvöll og Naustaborgir.
Eignin skiptist í forstofu, geymslu, þvottahús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, stofu og eldhús.
Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp.
Geymsla og þvottahús er innaf forstofu með flísum á gólfi, innaf geymslu er þvottahús með glugga. Bekkplata með vask og stæði fyrir þvottavél og þurrkara og efri skápum.
Svefnherbergin eru tvö bæði með parketi á gólfi og góðum fataskápum.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggir flísalagðir að mestu. Bæði baðkar og sturta, handklæðaofn og innrétting við vask.
Stofa með parketi á gólfi, útgengi er út á lóð úr stofu.
Eldhús með flísum á gólfi, flísar milli efri og neðri skápa, bakaraofn í vinnuhæð og stæði fyrir uppþvottavél í innréttingu.
Eigninni tilheyrir hlutdeild í vagna og hjólageymslu sem tvær íbúðir deila með sér.
Eigninni tilheyrir 40 fm sérafnotareitur á lóð norðvestan til.
Annað:
Húsið málað að utan fyrir ca 6 árum
Hitaþráður settur í þakrennur veturinn 2018/2019
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955