Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Einilundur 2 F
Vel skipulögð fjögurra herbergja raðhúsaíbúð í norður enda á einni hæð á vinsælum stað á Brekkunni. Eignin er samtals 101,8 fm. þar af er geymsla 8,4 fm. og eru tveir inngangar að framan og garður snýr til vesturs. Eignin skiptist í forstofu, hol, þrjú herbergi, baðherbergi, stofu og borðstofu, eldhús, þvottahús og geymslu.
Forstofa með ljósum flísum á gólfi og hvítum fataskáp og skúffum.
Hol með parket á gólfi.
Stofa og borðstofa í opnu rými með parket á gólfi og glugga á norðurstafni sem veitir birtu í rýmið. Úr stofu er gengið út á timbur verönd til vesturs.
Eldhús með með hvítri innréttingu, flísar milli efri og neðri skápa og er þar borðkrókur. Úr eldhúsi er gengið inn í þvottahús og þaðan inn í geymslu.
Þvottahús með glugga er innaf eldhúsi og er þar einnig sér inngangur/bakdyrainngangur.
Geymsla er innaf þvottahúsi.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með parketi á gólfi og fataskáp í hjónaherbergi.
Baðherbergi er með flísar á gólfi og stærstum hluta veggja. Baðkar með sturtutækjum og glerskilrúmi. Innrétting við vask er með hvítum skápum.
Annað:
**Eignin getur verið laus við kaupsamning**-Geymsla í sameignarkjallara fylgir eigninni og er gengið um hana á norðurenda
-Góð bílastæði við suðurenda og einnig norðan við hús
-Hiti í stétt
-Ruslaskýli
-Húsið snýr vel við sólu
-Ljósleiðari
-Áætlað er að húsfélagið endurnýji þak yfir stiga í sameign og geymslur
-Frábær staðsetning, stutt í ýmsa þjónustu við Kaupvang og Hrísalund auk leik- og grunnskóla, ásamt íþróttasvæði KA
-Hansa hillur í herbergi og geymslu fylgja ekki
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955