Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Hringtún 42 - Dalvík
Glæsileg þriggja herbergja endaraðhús íbúð í fjögurra íbúða húsi á flottum stað á Dalvík. Sameiginleg vagna- og hjólageymsla ásamt sérgeymslu er í miðju húsinu. Glæsilegt útsýni og víðsýnt til suðurs af steyptri verönd sem er með heitum potti. Eignin sem er samtals 92,7 fm. og skiptist í anddyri, tvö svefnherbergi, eldhús og stofu í opnu rými og baðherbergi.
Anddyri er með parket á gólfi og fataskáp.
Eldhús er með parket á gólfi, góð innrétting með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél og spanhelluborði.
Stofa er björt, með parket á gólfi og upptekið loft. Úr stofu er útgengt á steypta verönd til suðurs með heitum potti.
Svefnherbergi eru tvö, bæði með parket á gólfi og fataskápum. Upptekið loft í hjónaherbergi.
Baðherbergi er með flísar á gólfi og í kringum sturtu. Góð innrétting í kringum vask, upphengt salerni, sturtugler, handklæðaofn og stæði fyrir þvottavél og þurrkara.
Annað: -Upptekið loft í alrými og herbergi og innbyggð lýsing í loftum.
-Gólfhiti
-Varmaskiptir fyrir neysluvatn
-Steypt stétt fyrir framan húsið og malbikað bílaplan með lokuðu snjóbræðslukerfi.
-Steypt er meðfram húsinu vestan megin við það.
-Húsið er staðsteypt í plasteinangrunarkubba. Undirstöður eru einnig steyptar í plasteinangrunarkubba.
-Ljósleiðari tengdur
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955