Opið hús: 16. desember 2025 kl. 16:30 til 17:00.
Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Melasíða 3 - 305 Um er að ræða góða og bjarta þriggja herbergja íbúð á 3. hæð í fjölbýlishúsi með lyftu. Gott útsýni frá íbúð. Húsið hefur fengið gott viðhald og er sameign afar snyrtileg. Eignin er skráð 86,4 fm. að stærð auk geymslu í sameign og skiptist eignin í forstofu, hol, tvö svefnherbergi, stofa, eldhús, baðherbergi og þvottahús.
Forstofa með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Hol með parket á gólfi.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með parket á gólfi og er fataskápur í stærra herberginu.
Stofa með parket á gólfi, útgengi út á svalir til austurs úr stofu.
Eldhús með parket á gólfi, innrétting með flísum milli efri og neðri skápa, stæði fyrir uppþvottavél í innréttingu.
Baðherbergi með flísum á gólfi og á vegg við baðkar. Baðkar með sturtutækjum og glervæng, góð innrétting við vask ásamt speglaskápum.
Þvottahús með dúk á gólfi, innrétting við vask og tengi fyrir þvottavél.
Eigninni tilheyrir hlutdeild í sameiginlegri vagna- og hjólageymslu og
sér geymsla í sameign fylgir eigninni.
Annað:
- Ljósleiðari
- Snyrtileg sameign
- Viðhald/viðgerðir á þaki gert fyrir nokkrum árum síðan.
- Húsið málað að utan 2021
- Lyfta í húsinu
- Útsýni
- Stutt í leik- og grunnskóla, verslun og aðra þjónustu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955