Dvergaholt 9 - 211 0 603 Akureyri
Dvergaholt 9 - 211 0 , 603 Akureyri
68.800.000 Kr.
Tegund Fjölbýli
StærÐ 76 m2
HERBERGI 3 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 2 1 Sameig.
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
2023 57.020.000 52.800.000 0
Tegund Fjölbýli
StærÐ 76 m2
HERBERGI 3 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 2 1 Sameig.
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
2023 57.020.000 52.800.000 0

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Almenn sala

Dvergaholt 9 - íbúð 211 - Nýbygging

***Laus til afhendingar strax***


Glæsileg þriggja herbergja íbúð á 2. hæð (í raun 3 hæð í þessu húsi) í fjölbýlishúsi með lyftu. Svalir eru sólríkar enda snúa til vesturs.
Eigninni fylgir sér stæði í sameiginlegu bílastæðahúsi, auk sér geymslu í sameign. Samtals er hún 76,7 fm., þar af er geymsla 4,1 fm.  


Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu. 

Forstofa er með parketi á gólfi og þreföldum skáp. Loftræstistokkur/stýrikerfi er staðsett í forstofuskáp.
Eldhús er með parket á gólfi, vönduð innrétting með grárri borðplötu með marmara áferð. Ísskápur með frysti og innbyggð uppþvottavél fylgja. 
Stofa er ágætlega rúmgóð, parketi á gólfi og rennihurð út á svalir sem snúa til vesturs.
Svefnherbergin eru tvö bæði með parketi á gólfi og fataskápum. 
Baðherbergi er glæsilegt, stein gráar flísar á gólfi og hluta veggja, innrétting og speglaskápur í kringum vask, upphengt salerni, sturta með skyggðu sturtugleri og opnanlegt fag. Tengi er fyrir þvottavél.

Sér geymsla á jarðhæð, skráð 4,1 fm. og þar er lakkað gólf og rafmagnstengill.

Annað:
-Gólfhiti í allri íbúðinni
-Vandað harðparket á gólfum
-Innréttingar eru frá Brúnás.
-Hljóðdempandi plötur í loftum utan baðherbergis
-Mynddyrasími
-Loftskiptikerfi
-Mjög rúmt bílastæði í bílageymslu eða um 4 metrar
-Snjóbræðsla í öllum stéttum og bílaplani
-Möguleiki á rafhleðslustöð í bílastæðahúsi
-Möguleiki á svalalokun

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila.    (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 


Frekari upplýsingar:
[email protected]
[email protected]
[email protected]

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.