Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Smáravegur 10, Dalvík
Um er að ræða mikið endurnýjað fjögurra herbergja 157,3 fm. einbýlishús á einni hæð ásamt kjallara. Góð verönd til suðurs með heitum potti og góð bílastæði við húsið.
Eignin skiptist í forstofu, hol, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, forstofu/bakdyrainngangur og í kjallara er þvottahús og tvö mjög rúmgóð rými sem nú eru nýtt sem geymsla og gestaherbergi.
Forstofa með flísum á gólfi.
Hol með parket á gólfi.
Stofa með paket á gólfi, gluggar til tveggja átta.
Svefnherbergin eru þrjú, öll eru þau með parket á gólfi og eru fataskápar í tveimur þeirra.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum í sturturými. Opnanlegur gluggi, handklæðaofn, upphengt wc og lítil innrétting við vask.
Eldhús með flísum á gólfi, góð innrétting í eldhúsi með góðu vinnuplássi. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél, bakaraofn auk örbylgjuofn í vinnuhæð.
Forstofa/bakdyrainngangur að austan við hús með aðgengi úr eldhúsi, rúmgóð forstofa með flísum á gólfi og farið þaðan niður í kjallara.
Kjallari með lofthæð ca. 210 cm. þar er rúmgott þvottahús með opnanlegum glugga, flísar á gólfi. Þar fyrir innan eru tvö rúmgóð rými. Annað þeirra er notað sem gestaherbergi og hitt sem geymsla.
Geymsluskúr á lóð er óeinangraður.
Annað:- Eins og áður segir hefur eignin verið mikið endurnýjuð, að sögn eiganda hefur allt rafmagn í húsinu sem og allar vatnslagnir frá inntaki, bæði ofna/hitalagnir og neysluvatn.
- Búið að endurnýja klóak lagnir bæði inni og út í götu.
- Allt gler endurnýjað og að auki hafa gluggar í kjallara verið endurnýjaðir. Eftir að skipta um tvo glugga og þeir eru til.
- Allt hitakerfi hússins er endurnýjað frá inntaki. Ný hitagrind sett upp við inntak og gólfhiti settur í kjallara ásamt þeim stöðum þar sem flísar eru. Nýjir ofnar og ofnalagnir á öðrum stöðum. Nýjar útihurðir en eftir er að klára frágang.
- Búið er að jarðvegsskipta framan við hús og sett þar perlumöl, mjög góð bílastæði. Steypt stétt að húsinu og timburverönd með timburskjólveggjum sunnan við hús.
- Ljósleiðari tengdur.
- Rafmagnspottur
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955