Kjarnagata 57 - 207 0 600 Akureyri
Kjarnagata 57 - 207 0 , 600 Akureyri
73.400.000 Kr.
Tegund Fjölbýli
StærÐ 84 m2
HERBERGI 4 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 3 0 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
2023 60.350.000 62.400.000 0
Tegund Fjölbýli
StærÐ 84 m2
HERBERGI 4 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 3 0 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
2023 60.350.000 62.400.000 0

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Kjarnagata 57 - 207


Vel skipulögð 4 herbergja íbúð á 2. hæð í mjög nýlegu fjölbýlishúsi með lyftu og bílakjallara sem er sameiginlegur með húsi 55. Gengið er inn um sérinngang af svalagangi og svalir úr íbúð snúa til vesturs og eru með svalalokun. Eignin er samtals 84,5 fm. þar af er geymsla 9,3 fm. og eigninni fylgir bílastæði í bílakjallara. 

Íbúðin skiptist í anddyri, þrjú svefnherbergi, eldhús og stofu í opnu rými og baðherbergi. 

Anddyri er með flísar á gólfi og fataskápum á gangi. 
Svefnherbergi eru þrjú, tvö við anddyri, bæði með parket á gólfi og fataskápur í öðru þeirra og svo hjónaherbergi sem er einnig með parket á gólfi og fataskápum. 
Eldhús er með L-innréttingu, stæði fyrir ísskáp og uppþvottavél og góðu bekkjarplássi. 
Stofa er opin við eldhús og úr henni er gengið út á svalir til vesturs sem eru með svalalokun. 
Baðherbergi er flísar á gólfi og hluta veggja, góð innrétting í kringum vask og utan um þvottavél og þurrkara. Sturta er með vængjahurðum og salerni er upphengt. 

Bílastæði í bílakjallara fylgir en það er bjart og rúmgott rými með sér þvottastæði til afnota fyrir íbúa. Rafmagnstengill til bílhleðslu er við bílastæðið.
Sér geymsla í kjallara er afar rúmgóð og mjög rúmgóð hjóla- og vagnageymsla fylgir. 

Annað: 
-Mynddyrasími
-Hvítar innihurðir
-Gólfhiti
-Hiti í stéttum fyrir utan og að sorpgerði þar sem eru djúpgámar
-Gúmmíhellur og snjóbræðsla í svalagang að íbúð
-Innréttingar koma frá HTH
-Glæsilegt útsýni er til vesturs 


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila.    (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 


Frekari upplýsingar:
[email protected]
[email protected]
[email protected]
[email protected]

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.