Fasteignasalan Byggð 464-9955 - EinkasalaGeirþrúðarhagi 1 - 306
Vel skipulögð tveggja herbergja íbúð á 3. og efstu hæð í fjölbýlishúsi með lyftu í Hagahverfi. Eignin er samtals 54,3 en þar af er geymsla í sameign 2,3 fm. Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús og stofu í opnu rými, svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu.
Forstofa og gangur eru með parketi á gólfi og á gangi er góður fataskápur.
Eldhús og stofa eru í opnu rými með parketi á gólfi og útgengt um rennihurð á rúmgóðar svalir.
Eldhúsinnrétting er með stæði fyrir ísskáp og uppþvottavél og ágætt skápa og bekkjarpláss.
Svefnherbergi er með parketi á gólfi og góðum fataskáp.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, innréttingu í kringum vask með speglaskáp, stæði fyrir þvottavél, upphengdu salerni og sturtu með vængjahurð.
Annað:
-Laus til afhendingar fljótlega-Sér inngangur af svalagangi
-Lyfta
-Mynddyrasími
-Hljóðdempandi plötur í lofti utan baðherbergis
-Ljósleiðari
-Sameiginleg vagna- og hjólageymsla er í sameign á jarðhæð
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955