Hagaflöt 4 - 101 (a) 0 604 Akureyri
Hagaflöt 4 - 101 (a) 0 , 604 Akureyri
99.900.000 Kr.
Tegund Raðhús
StærÐ 143 m2
HERBERGI 4 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 3 1 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
2025 0 10.150.000 0
Tegund Raðhús
StærÐ 143 m2
HERBERGI 4 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 3 1 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
2025 0 10.150.000 0

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Hagaflöt 4 - 101 (A) - Nýbygging

Um er að ræða fjögurra herbergja endaraðhúsíbúð á einni hæð með innbyggðum bílskúr í Hagabyggð í Hörgársveit. 
Íbúðin er 143,8 fm., þar af bílskúr 26,7 fm. og hönnuð með áherslu á rými, birtu og þægindi.


Gólfhiti er í öllum rýmum og lofthæð nær allt að 3,5 metrum í stofu með hallandi lofti sem eykur rýmiskennd og náttúrulega birtu. Lofthæð í öðrum rýmum er 2,7m.. Rými tengjast mjúklega saman þannig að eldhús, stofa og borðstofa mynda opið og notalegt fjölskyldurými.

Eignin skiptist í anddyri, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, alrými með stofu og eldhúsi, þvottahús og bílskúr. Útgengt er út á verönd úr stofu, eldhúsi og af baðherbergi. Lagt er fyrir heitum potti á verönd.

Parket verður í aðalrýmum og herbergjum en flísar á forstofu, baðherbergi, þvottahúsi og epoxy á bílskúr. Hiti í gólfum og loftskiptikerfi, vélræn loftræsting. Dúkur er í loftum fyrir utan bílskúr og þvottahús. Allar innréttingar og skápar koma frá Parka og blöndunartæki frá Tengi. 

Utanhúss er eigninni skilað með steyptum stéttum með snjóbræðslukerfi, bílaplani og grasi á lóð. Hver íbúð hefur steypta verönd og sérafnotaflöt fyrir garð. 

Frekari upplýsingar um eignina er að finna á heimasíðu byggingaraðila, boggur.is, smellið hér!

Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar þess verður krafist, (0,3% af brunabótamati viðkomandi eignar).
Hönnuður:
Steinmar H. Rögnvaldsson
Byggingaraðili: Böggur ehf.
Afhending: Sumar/haust 2026
Ath: Tölvuteiknaðar myndir í auglýsingu eru aðeins til viðmiðunar en endurspegla ekki endilega nákvæmt efnis- eða litaval eða aðra eiginleika framar lýsingu. 

Nánar:

Innréttingar, skápar og innihurðir: 
Innréttingar eru af vandaðri gerð frá Parka. Í eldhúsinnréttingu eru innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Heimilistæki verða frá Electrolux eða sambærilegt: span helluborð, ofn, uppþvottavél og ísskápur heill.
Innrétting á baðherbergi/þvottahúsi er með stæði fyrir þvottavél og þurrkara eins og teikningar sýna. Gólf í baðherbergi/þvottahúsi er flísalagt. Veggir eru flísalagðir en aðrir veggir baðherbergis eru málaðir.
Fataskápar eru í svefnherbergjum, ljósir að lit frá Parka eða sambærilegir.
Innihurðir eru yfirfelldar frá Parka eða sambærilegt.

Gólfefni:
Anddyri og baðherbergisgólf eru flísalögð. Önnur gólf eru lögð harðparketi. Epoxy verður á gólfi í bílskúr. Gólfhiti er í íbúð og bílskúr.
Hreinlætis- og blöndunartæki eru að viðurkenndri gerð frá Tengi eða sambærilegt. Hver íbúð er sjálfstætt brunahólf og fylgja reykskynjari og handslökkvitæki hverri íbúð. 

Frágangur á lóð:
Lóð verður jöfnuð og tyrfð. Eignir eru afhentar án trjágróðurs á lóð.

Stéttir og bílastæði:
Bílastæði við aðkomuhlið íbúðar verður steinsteypt með snjóbræðslu. Stétt fyrir framan hús og verönd fyrir aftan hús er steypt með snjóbræðslu. Léttir klæddir veggir aðskilja íbúðir frá hverri annarri. Forsteyptar tveggja tunnu sorptunnugeymslur eru staðsettar nærri götu. 
Lagt er fyrir heitum pottum.
Bílastæði eru tvö fyrir framan hvert hús. Heimreið og gesta-/aukastæði verða malbikuð.
 
Veggir:
Innveggir eru smíðaðir úr grind úr timbri eða blikkstoðum og klæddir með krossviði og gifs-plötum. 
Veggir milli íbúða eru steyptir.
Loftafrágangur: Öll loft nema bílskúr og þvottahús eru með hljóðeinangrandi loftdúk og innfelldri lýsingu. Önnur loft eru gipsklædd.
Útveggir eru steyptir einangraðir og klæddir að utan með kasettuklæðningu.

Þakfrágangur: 
Þak er timburþak/sperruþak klætt með 1“6 timbri, loftunardúk, lektum 18 mm þakkrossvið og tvöföldu lagi af pappa.
Hús 2 og 5 eru með CLT þaki einangrað ofanfrá.  

Gluggar: 
Ál/trégluggar, aðalinngangshurðir og garðhurðir eru frá Rational. Bílskúrshurðir eru frá Húsasmiðjunni eða sambærilegt.
 
Væntanleg afhending íbúða er sumar/haust 2026

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila.    (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 


Frekari upplýsingar:
[email protected]
[email protected]
[email protected]
[email protected]

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.