Fasteignasalan Byggð 464-9955 - EinkasalaHúnabraut 28 - Blönduós
Vel staðsett og vel skipulagt 6-7 herbergja einbýlishús á tveimur hæðum með sambyggðum bílskúr. Samtals er eignin 229,8 fm., þar af er bílskúr 34,6 fm. Efri hæðin er skráð 119,1 og íbúðarhluti neðri hæðar utan bílskúrs skráður 76,1 fm..Eignin skiptist í forstofu, tvö herbergi, salerni, geymslu, gang og þvottahús á neðri hæð. Eldhús, búr/geymslu, stofu, 4 svefnherbergi, geymslu og baðherbergi á efri hæð.
Neðri hæð:Forstofa er með flísar á gólfi og opnu fatahengi.
Forstofuherbergi er með parket á gólfi og er í dag nýtt sem skrifstofa.
Salerni er inn af forstofu.
Hol við stiga er með parket á gólfi.
Gangur er með parket á gólfi.
Þvottahús er mjög rúmgott enda var opnað á milli þess og sem áður var kyndirými. Góð innrétting með stæði fyrir þvottavél og þurrkara, bekkur með vask og útgengt út í garð er úr þvottahúsi. Þar er einnig innrétting í kringum vask og sturtuklefi.
Lítil
geymsla er við endan á ganginum.
Svefnherbergi er svo einnig innst á ganginum. Það er rúmgott með parket á gólfi.
Bílskúr er mjög rúmgóður og bjartur, búið að koma fyrir
hleðslustöð sem fylgir ef þess er óskað. Efri hæð: Stigi er afar fallegur með mjög stórum og glæsilegum glugga sem gefur mikla birtu inn í stigauppgönguna og á hol efri hæðar.
Eldhús er með parket á gólfi, eldri innréttingu með stæði fyrir þvottavél, ísskáp og eldavél með keramik helluborði. Mjög gott bekkjarpláss er í eldhúsinu.
Búr eða geymsla er við hlið eldhúss sem skilið er að með léttum vegg. Væri hægt að stækka eldhúsið á kostnað þess. Þar inni er lúga upp á loft.
Stofa er afar björt en búið er að byggja yfir svalir sem þar voru. Einnig er búið að taka hluta af stofurými undir svefnherbergi, vel hægt að breyta til baka.
Svefnherbergi eru fjögur, eitt eins og áður sagði útbúið með léttum vegg á kostnað hluta af stofu. Úr því sem er skráð á teikningum sem hjónaherbergi er útgengt út á svalir til suðurs og í því herbergi er einnig mikið skápapláss.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, baðkar, handklæðaofn og hvít innrétting í kringum vask með speglaskáp.
Geymsla er innst á gangi en hún er í dag nýtt sem svefnherbergi.
Annað: -Húsið klætt með Steni plötum og einangrað fyrir um 25 árum
-Skipt um gluggapósta og gler víða og opnanleg fög endurnýjuð
-Þak yfirfarið og málað
-Jarðvegsskipti að hluta á lóð og undirbúið fyrir hellulögn
-Bætt við timburpalli og hellulagt í kringum leiktæki fyrir börn í garði
-Mjög góð bílastæði fyrir framan hús
-Farið í rafmagn að miklu leiti, meðal annars töflu og gert ráð fyrir hleðslustöð, þriggja fasa rafmagn
-Ljósleiðari, nýr beinir í nýjum kassa og á efri hæð er aðgangspunktur (access point)
-Bætt við innstungum utanhúss
-Hitakerfi hússins yfirfarið og meðal annars skipt um nokkra ofna, þrýstijafnara og nýjar lagnir að vask og sturtu í þvottahúsi á neðri hæð
-Vel staðsett eign með tilliti til verslunar, þjónustu og leik- og grunnskóla
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955