Bjarkarbraut 17 0 620 Dalvík
Bjarkarbraut 17 0 , 620 Dalvík
57.500.000 Kr.
Tegund Raðhús
StærÐ 136 m2
HERBERGI 4 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 3 1 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1960 62.700.000 41.650.000 0
Tegund Raðhús
StærÐ 136 m2
HERBERGI 4 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 3 1 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1960 62.700.000 41.650.000 0
Opið hús: 13. mars 2026 kl. 16:15 til 17:00.

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala 

Bjarkarbraut 17, Dalvík 


Um er að ræða skemmtilega og mikið endurnýjaða fjögurra herbergja íbúð í raðhúsi, eignin sem er á tveimur hæðum er með sér inngang og er í norðurenda hússins. Eigninni fylgir upphitaður geymsluskúr á lóð. 

Eignin skiptist í forstofu þar sem komið er inn á milli hæða, á efri hæð er björt stofa með stórum útsýnisglugga, borðstofa og eldhús. Eitt svefnherbergi er nokkrum þrepum ofar en efri hæðin. Á neðri hæðinni eru tvö svefnherbergi, geymsla, baðherbergi og bakdyrainngangur. 
Öll rými íbúðar eru með gólfhita, flotað og lakkað gólf. 

Forstofa rúmgóð með heimatilbúnum handklæðaofni. 
Stofa, borðstofa og eldhús í opnu rými, áður var svefnherbergi þar sem borðstofan er og er því ekkert mál að breyta því aftur til fyrra horfs. Mjög fallegt útsýni úr stofuglugganum til suðurs og vesturs. Eldhúsinnrétting með góðu vinnuplássi, stæði fyrir uppþvottavél, spanhelluborð og háfur. Góð eyja sem hægt er að sitja við og eru skúffur öðru megin. 
Svefnherbergin eru þrjú, eitt á efri hæð og tvö á neðri hæð. Herbergið á efri hæð er yfir forstofunni er með lægstu lofthæð um 2 m. hæð við hurð.
Geymsla innan íbúðar sem er einnig tækni-, lagnarými og er þar opnanlegur gluggi. 
Baðherbergi með opnanlegum glugga, góð innrétting með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Heimatilbúinn handklæðaofn, stór walk in sturta sem er flísalögð og upphengt wc. Rennihurð er á baðherbergi.
Bakdyrainngangur er á neðri hæð austan við hús.
Möl er á bílapstæðinu framan við hús og þar sem geymslurskúrinn stendur. Að öðru leyti er gras á baklóð og framan við hús fyrir utan smá hellulögn upp við húsið að baka til og steypt verönd og ströppur framan við hús. 
Sunnan við hús er sameiginlegt lagnarými, en hiti og rafmagn er sér fyrir hverja íbúð.

Annað: 
2011 - Einangrað að utan og steinað, skipt um útidyrahurðir, nýjar útitröppur og stéttar við aðalinngang.
2018-2019 - Ný vatnsinntök, ný lagnagrind, allar lagnir lagðar nýjar, dregið nýtt í allt rafmagn, bætt við auka rafmagnstöflu fyrir eldhús, gólfhiti lagður í allt húsið, skólplagnir myndaðar.
2020 - Þak endurnýjað og einangrað.
2025 - Skipt um alla glugga í íbúðinni.
13 fm. geymsluskúr einangraður og með rafmagni. 3 fm. köld dekkjageymsla aftan við skúr.
Útikrani og útitenglar.
Auðvelt að búa til auka herbergi í stofu.
5 fm. geymsla innan íbúðar með opnanlegu fagi (hefur verið notuð sem herbergi).
Gott útsýni.
Hitaþráður í rennum á öllu húsinu. 

ATH. fasteignasali hefur breytt grunnmyndum til að sýna núverandi skipurlag á eigninni. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila.    (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 

Frekari upplýsingar:
[email protected]
[email protected]
[email protected]

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.