Fasteignasalan Byggð 464-9955Þórunnarstræti 125 - 101Um er að ræða rúmgóða og mikið endurnýjaða fjögurra herbergja neðri sérhæð í tvíbýlishúsi ásamt bílskúr innangengum úr sameignarrými, sér inngangur er í íbúðina. Eignin er samtals 177,1 fm að stærð þar af er bílskúr 29,5 fm. Eignin hefur verið mikið endurnýjuð ásamt því að ný eignaskiptayfirlýsing var gerð. Nánar um endurbætur hér neðar í lýsingu.
Vel staðsett eign miðsvæðis á Akureyri, í nálægð við leik- og grunnskóla, verslanir og ýmsa þjónustu.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, baðherbergi með þvottaaðstöðu og þrjú svefnherbergi. Bílskúr og þrjár sér geymslur.
Forstofa með parketi á gólfi.
Eldhús með parketi á gólfi, falleg innrétting með mjög góðu bekkjarplássi. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél, span helluborð með háf yfir, bakaraofn í vinnuhæð ásamt combiofni. Tæki og innréttingar frá IKEA.
Stofa og borðstofa björt með parketi á gólfi. Stórir gluggar til tveggja átta.
Baðherbergi með flísum á gólfi og við sturtu. Góð innrétting við vask með skúffum ásamt efriskáp. Wc upphengt og stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð í innréttingu. Útgengi úr baðherberginu út á lóð og litla verönd til vesturs. Þar væri möguleiki á að setja heitan pott en aðgengi að lögnum fyrir þeim er nokkuð þægilegt.
Svefnherbergin eru þrjú, öll eru þau með parketi á gólfi og er fataskápur í einu þeirra.
Gangur framan við svefnherbergin með parketi á gólfi, á gangi er góð hirsla með skúffueiningum sem gæti til dæmis komið í stað skápa í herbergjum.
Farið er niður í sameignar kjallara úr forstofu, búið er að skipta kjallaranum þannig að í séreign eru:
Tvær litlar geymslur með hillum.
Stór geymsla með glugga
Bílskúr með nýrri rafdrifinni bílskúrshurð.
Í kjallara er einnig sameigninlegur inngangur.
Árið 2022 til 2023 var eignin algjörlega tekin í gegn að innan ásamt því að ný eignaskiptayfirlýsing var gerð þar sem rými í kjallara voru skilgreind.- Allar innréttingar eru nýjar.
- Allar innihurðar eru nýjar.
- Eldhús, eldhústæki eru ný.
- Baðherbergi ásamt tækum er nýtt.
- Rafmagn er nýtt, bæði innan íbúðar og í kjallara rýmum.- Nýjar rafmagnstöflur - Sér mælir fyrir hvora eign í húsinu.
- Rafmagnstenglar í herbergjum eru með USB / USB-C tengjum
- Unifi netdiskar uppsettir í bílskúr og á hæð.
- Ljósleiðari kominn inn og tengdur.
- Gólfhiti fræstur í öll gólf innan íbúðar.
- Allar neysluvatnslagnir endurnýjaðar innan íbúðar.
- Varmaskiptir á vatni.
A.t.h fasteignasali hefur gert breytingar á grunnmynd íbúðar til að sýna núverandi skipulag og einnig má sjá séreignarými á annarri teikningu. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955