Lækjargata 3 0 600 Akureyri
Lækjargata 3 0 , 600 Akureyri
200.000.000 Kr.
Tegund Einbýli
StærÐ 274 m2
HERBERGI 9 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
4 8 4 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1896 119.450.000 117.850.000 0
Tegund Einbýli
StærÐ 274 m2
HERBERGI 9 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
4 8 4 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1896 119.450.000 117.850.000 0

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala 

Lækjargata 3


Um er að ræða fallegt endurbyggt einbýlishús á tveimur hæðum með auka þriggja herbergja íbúð í kjallaranum og tveggja herbergja íbúð í gestahúsi. Góð bílastæði og mjög snyrtileg lóð með heitum potti og útisturtu á baklóð, timburverönd og hellulagðar stéttar sem og bílastæði við húsin. Eign sem vert er að skoða. Margir útleigu möguleikar. 

Eignin skiptist sem hér segir:
Hæð og ris:
Forstofa að austan, eldhús, stofa, forstofa að vestan , baðherbergi og svefnherbergi á hæðinni. Á rishæðinni eru fjögur svefnherbergi, baðherbergi og stofa. Samtals eru fimm mjög góð svefnherbergi í þessum hluta fasteignar. 
Forstofa að austan með flísum á gólfi, úr forstofu er farið niður í kjallara í tæknirými/geymsla og þaðan er innangengt í kjallara íbúðina en einnig er sér inngangur í íbúðina. 
Eldhús með flísum á gólfi, útgengi frá eldhúsi út á verönd til suðurs. Eldhúsinnrétting með bakaraofn í vinnuhæð og er þar innbyggð uppþvottavél. 
Forstofa að vestan með flísum á gólfi og fataskáp. Frá forstofunni er farið inn í svefnherbergi, baðherbergi og inn í eldhúsið. Hægt er að læsa millihurðinni frá forstofu og eldúsi og hefur sá hluti verið nýttur sér. Sér inngangur með forstofu, svefnherbergi og baðherbergi. 
Baðherbergi með flísum á gólfi og hluta veggja, sturta með flísum á gólfi og veggjum með rennihurðum, upphengt wc og innrétting við vask ásamt speglaskáp. Í innréttingunni er innbyggður lítill ísskápur og örbygluofn í efri skáp. Opnanlegur gluggi á baði. 
Svefnherbergi með parket á gólfi og fataskáp. 
Farið er á efri hæðina frá eldhúskróknum. 
Svefnherbergin eru fjögur á rishæðinni og eru þau öll mjög rúmgóð og eru fataskápar í þremur þeirra.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, sturta með flísum á gólfi og veggjum með rennihurðum, baðkar, upphengt wc, handklæðaofn og innrétting við vask. Opnanlegur þakgluggi er á baði. 
Stofan er rúmgóð og björt með útgengi út á svalir til suðurs.  

Kjallara íbúð: Forstofa, tvö svefnherbergi, þvottahús, baðherbergi, stofa og eldhús í opnu rými. Sér inngangur er í íbúðina að austan
Forstofa með flísum á gólfi. Þaðan einnig innangegnt í tæknirými/þvottahús og þaðan milli íbúða.  
Svefnherbergin eru tvö, bæði mjög rúmgóð með parket á gólfum og fataskápum. 
Stofa og eldhús í opnu rými með parket á gólfi, eldhúsinnrétting með stæði fyrir 45 cm uppþvottavél. 
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, walk in sturta með flísum á gólfi og veggjum og glerskilrúmi. Upphengt wc, innrétting við vask og lítill opnanlegur gluggi. 
Þvottahús með vinnuborði og tengi fyrir þvottavél. 

Eins og áður segir þá er innangengt milli íbúða frá forstofu með aðkomu í tæknirými/geymslu. Þar er gott skápapláss. 

Gestahús: Góð 40 fm. tveggja herbergja íbúð sem skiptist í, anddyri, stofu og eldhús í opnu rými, svefnherbergi og baðherbergi. 
Anddyri, stofa og eldhús í opnu rými, flísar við anddyri og parket á alrými. Eldhúsinnrétting með efri skápum í alrými. 
Svefnherbergi með parket á gólfi og fataskáp. 
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta, sturta flísalögð, upphengt wc og innrétting við vask. 

Annað: 
- Heitur pottur og úti sturta
- Margir útleigu möguleikar 
- Gólfhiti er í öllum rýmum fyrir utan rishæð. 
- Snjóbræðsla að mestum hluta þar sem hellulagt er. 
- Góð bílastæði 
- Eignarlóð 1344 fm. 
- Vekjum athygli á að svæðið sem heiti potturinn stendur á er aðeins utan lóðarmarka. 


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila.    (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 


Frekari upplýsingar:
[email protected]
[email protected]
[email protected]

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.