Fasteignasalan Byggð 464-9955
Öldugata 12 - 102
**Eignin fellur undir skilyrði HMS um hlutdeildarlán**
**Laus til afhendingar við kaupsamning**
Vel skipulögð og björt þriggja herbergja raðhúsaíbúð á einni hæð á Árskógsandi. Um nýbygginu er að ræða og er þetta eina íbúðin sem eftir er í húsinu. Samtals er eignin 93,8 fm., þar af er sér geymsla í sameignarsvæði 7,7 fm..
Eignin skiptist í anddyri stofu og eldhús í opnu rými, tvö svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Anddyri er með flísar á gólfi og fataskáp.
Stofa og eldhús er í opnu rými með parket á gólfi og úr stofu er útgengt út á steypta stétt til vesturs. Eldhúsinnrétting er hvít með með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél sem fylgir. Gott bæði skápa- og bekkjarpláss í innréttingu. Upptekið loft með dúk og innfelldri lýsingu er í alrýminu.
Svefnherbergi eru tvö, bæði með parket á gólfi og fataskáp. Úr hjónaherbergi er útgengt út í garð til austurs.
Baðherbergi er með flísar á gólfi og hluta veggja í kringum votrými. Innrétting í kringum vask, upphengt salerni, sturta með glerskilrúmi, handklæðaofn og innrétting fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Sérgeymsla er staðsett milli íbúða í sameign en sameignarsvæðið fyrir framan geymslur nýtist sem hjóla- og vagnageymsla.
Annað: -Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning
-Til greina koma skipti á bæði dýrara og ódýrara húsnæði-Ídráttarrör frá aðaltöflu að bílastæði fyrir rafhleðslustöð
-Varmaskiptir á neysluvatni
-Snjóbræðsla í stéttum, lokað kerfi
Skilalýsing eignar: Húsið er þriggja íbúða raðhús á einni hæð ásamt sameign. Í sameign eru sérgeymsla fyrir hverja íbúð, ásamt vagna og hjólageymslu.Húsið er timbureiningahús, einangrað með 145 mm steinull í útveggjum. Undirstöður eru steyptar í plast einangrunarkubba. Undir gólfplötu er einangrað með 4” plasteinangrun. Gólfplata er steypt, pússuð með flotbretti og rétt af með flotmúr.
Þak er einhalla til norðurs, burðarvirki úr timbri, einangrað með 250mm steinull (reglugerð 220mm). Þak er með 2 lögum af asfalt dúk.Veggir, loft, gólfefni og innréttingar:Innveggir eru klæddir einu lagi af viðarplötum (festa fyrir skrúfur) og gips þar yfir. Allir veggir og loft verða sandspörsluð þar sem við á og fullmáluð í ljósum lit samkvæmt vali hönnuðar.
Loft upptekin loft í alrými með innfeldum ljósum og hljóðdempunardúk. Önnur loft niðurtekin.
Gólfefni gólf í forstofu og baðherbergi verða flísalögð. Önnur gólf íbúðar verð með vönduðu vínyl parketi.
Innihurðir verða yfirfelldar með stálhandföngum.
Í eldhúsi verða hvítar sprautulakkaðar og/eða plastlagðar. Á milli bekkja og efri skápa í eldhúsi verða flísar eða fiber plötur með t.d. steypuáferð. Bekkjarplötur verða harðplast plötur.
Spanhelluborð og viftar. Bakaraofn með blæstri. Innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur og frystir fylgja með við sölu eignar. Ábyrgð raftækja er 5 ár.
Fataskápar framhliðar fataskápar verða hvítar. Allar skúffur og skápahurðir verða með ljúflokum af viðurkenndri gerð.
Lagnir og rafmagn:Baðherbergi verður með sturtu, vegghengdu salerni og handklæðaofni. Stórt (aflangt) niðurfall í gólfi og glerhlið niður í gólf. Í kringum sturtu koma flísar. Innrétting og skápar verða hvít hálfmatt.
Hreinlætis-og blöndunartæki í húsinu verða af viðurkenndri gerð. Varmaskiptir fyrir neysluvatn verður uppsettur og tengdur.
Gólfhitakerfi er í öllum gólfum, lagt í hvert rými fyrir sig og stýring fyrir hvert rými.
Neysluvatnslagnir (rör í rör) verða lagðar í gólf að tengistað með tilheyrandi búnaði. Fráveitu- og drenlagnir lagðar samkvæmt teikningu og tengdar við fráveitukerfi. Ídráttarrör verða fyrir mögulegan heitan pott.
Rafmagn röralagnir ásamt tilheyrandi dósum fyrir rafmagn og síma/internet lagt í veggi og loft samkvæmt
teikningu. Raf og síma-/netlagnir verða fullfrágengnar. Rafmagnstafla verður fullfrágengin. Rör verður
lagt frá aðaltöflu að bílastæði fyrir rafhleðslu á bifreiðum.
Öll ljós íbúðar verða fullfrágengin ásamt lýsingu undir efri skápum í eldhússinnréttingu. Upptekin loft í alrými með innfeldum ljósum.
Útiljós samkvæmt teikningu verða uppsett og frágengin.
Klæðning og frágangur á lóð:Útveggir verða klæddir að utan með litaðri álklæðningu og timburklæðningu að hluta samkvæmt vali hönnuða. Hurðir og gluggar eru úr timbri og klætt lituðu áli að utan. Tvöfalt gler.
Lóðin verður jöfnuð og sáð í grasifræi. Stéttar og verandir verða steyptar, en bílaplön malbikuð. Snjóbræðslukerfi verður í stéttum og veröndum. Snjóbræðslukerfi verður lokað kerfi, áfyllt frostlegi og tilbúið með varmaskipti.
Reykskynjari og handslökkvitæki verður sett upp í hverri íbúð.
Húsið er byggt samkvæmt teikningum gerðum af Arkibygg og hönnuð af Ástríði Birnu Árnadóttur arkitekt og Stefaníu Helgu Pálmadóttur byggingafræðingi.Byggingaraðili: EGO hús ehf á Akureyri.
Afhending: Við kaupsamning
Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar þess verður krafist, (0,3% af brunabótamati eignar)Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955