Opið hús: 02. apríl 2026 kl. 12:00 til 14:00.Opið hús: Eignirnar í Lyngmóa 1 - 3 - 5 verða sýndar fimmtudaginn 2. apríl (skírdag) milli kl. 12:00 og kl. 14:00. Verið velkomin!
Fasteignasalan Byggð 464-9955 - EinkasalaLyngmói 3 - 405Ný glæsileg fjögurra herbergja íbúð á 1.hæð í fjölbýlishúsi með lyftu, svalir snúa til vesturs. Eigninni fylgja
2 stæði í sameiginlegum bílakjallara auk sérgeymslu í sameign. Samtals er hún 120,2 fm., þar af er geymsla 6,1 fm. Gólfhiti og loftskiptikerfi er í íbúð, hvítar innihurðir og allar innréttingar koma frá Brúnás. Eignin afhendist fullbúin með gólfefnum.
Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu í opnu rými, baðherbergi með þvottaaðstöðu og þrjú svefnherbergi.
Anddyri með parketi á gólfi og fataskáp.
Eldhús og stofa í opnu rými, útgengt út á svalir til vesturs úr stofu. Góð innrétting í eldhúsi, þar eru skúffur og helluborð. Stæði fyrir ísskáp, uppþvottavél og bakaraofn í vinnuhæð.
Baðherbergi með flísum á gólfi og á veggjum í sturtu. Sturta með glerskilrúmi og upphengt wc. Góð innrétting við vask ásamt speglaskápum og stæði fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu í vinnuhæð. Loftræstistokkur/stýrikerfi er í skáp fyrir ofan þvottavél og þurrkara og í honum er því ekkert bak eða hillur. ATH innaf hjónaherbergi er sérbaðherbergi með sturtu og innréttingu
Svefnherbergin eru þrjú öll með parketi á gólfi og fataskápum.
Laus til afhendingar haust 2026
Verktaki: Trétak ehf.Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar þess verður krafist, (0,3% af brunabótamati viðkomandi eignar).Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955