Fasteignasalan Byggð 464-9955Melar, Dalvík
Um er að ræða mikið endurnýjað einbýlishús ásamt stakstæðum bílskúr, góð verönd og geymsluskúr á lóð. Eignin er skráð samtals 199,7 fm. að stærð, þar af er bílskúrinn 40,8 fm. Eignin skiptist í aðalhæð 87,1 fm., kjallari 37,4 fm. og rishæð 34,4 fm.
Forstofa, þvottahús, svefnherbergi, eldhús, baðherbergi og stofa á aðalhæðinni. Farið er niður í kjallari úr forstofunni og er rými undir hluta af húsinu. Farið er upp á ris framan við baðherbergi, á risinu er eitt herbergi og opið rými. Forstofa rúmgóð með flísum á gólfi og fataskáp.
Þvottahús er innaf forstofu með flísum á gólfi, góð innrétting með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, vaskur og opnanlegur gluggi.
Svefnherbergi innaf þvottahúsi með parket á gólfi og góðum fataskáp.
Farið er niður í
kjallara úr þvottahúsi. Nokkuð brattur stigi niður og er lofthæðin þar ca. 190-200 cm. Mjög gott geymslupláss og/eða vinnurými.
Eldhús með parket á gólfi, góður borðkrókur í eldhúsi. Gott skápa- og vinnupláss í eldhúsi með flísum milli efri og neðri skápa.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, innrétting við vask, handklæðaofn, upphengt wc, sturta með glervængjum og opnanlegur gluggi.
Farið er upp á
rishæðina framan við baðherbergi um nokkuð brattan stiga. Rúmgott opið rými og eitt svefnerbergi.
Stofa með parket á gólfi.
Bílskúr er stakstæður með rafmagnsopnun á bílskúrshurð og einnig er inngönguhurð á hliðinni.
Mjög góð verönd til vesturs, hellulögð að hluta og með timburskjólveggjum. Geymsluskúr á lóð
Annað:- Húsið klætt að utan 2007
- Þakið endurnýjað 2008
- Rafmagnstaflan síðan 1986 og búið að endurnýjað að einhverjum hluta 2010
- Ofnar, ofnalagnir og rafmagn að hluta endurnýjað á efri hæð 2015
- Snúrustaur á lóð
- Útsýni
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955