Opið hús: 14. apríl 2026 kl. 16:30 til 17:00.Eignin verður sýnd þriðjudaginn 14. apríl 2026 milli kl. 16:30 og kl. 17:00.
Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Kjarnagata 43 - 304
Falleg og björt 3-4 herbergja endaíbúð á þriðju og efstu hæð í fjölbýli með lyftu, í Naustahverfi. Sérinngangur er af svalagangi þar sem aðeins eru tvær íbúðir. Eignin er samtals 85,6 fm. en auk þess er geymsla í sameign á jarðhæð sem ekki er getið í fjölda fermetra. Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, tvö svefnherbergi, geymslu innan íbúðar sem getur nýst sem þriðja svefnherbergið og baðherbergi með þvottahúsi.
Forstofa með flísar á gólfi og opnu fatahengi.
Svefnherbergi eru bæði með parket á gólfi og fataskápum.
Geymsla innan íbúðar er með parket á gólfi, fataskáp og getur nýst sem þriðja svefnherbergi.
Baðherbergi er með flísar á gólfi, innréttingu í kringum vask, upphengt salerni, sturtuklefa og innréttingu í kringum þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Eldhús og stofa er í opnu rými með parket á gólfi. Úr stofu er gengið út á svalir sem snúa til suðurs. Góð L-innrétting er í eldhúsi með stæði fyrir uppþvottavél og ísskáp. Þá er góður hornskápur og tækjaskápur þar fyrir ofan.
Annað: -Svalir snúa til suðurs
-Ljósleiðari tengdur
-Sólbekkir í öllum gluggum
-Myrkvunar og screen gardínur eru frá Sólstef og sérmældar í glugga
-Innrétting var stækkuð frá teikningum og er nú L - laga í stað þess að vera á einum vegg samkv. teikningum
-Glæsilegt útsýni
-Mjög stutt í leik- og grunnskóla sem og útivistarparadís í Naustaborgum og golfvöllinn
-Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign ásamt sér geymslu, góðar hillur í geymslunni
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955