Opið hús: 20. apríl 2026 kl. 16:00 til 16:30.Eignin verður sýnd mánudaginn 20. apríl 2026 milli kl. 16:00 og kl. 16:30.
Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Brekkugata 14 - 001
Virkilega vel staðsett, skipulögð og björt 2-3 herbergja íbúð á neðstu hæð í virðulegu húsi á neðri brekku við miðbæinn. Eignin er samtals 77 fm. en þar af er sér geymsla í sameignarými 6,7 fm.
Forstofa er með flísar á gólfi og opnu fatahengi.
Hol fyrir framan forstofu er með parket á gólfi og þaðan er innangengt í sameignarrými.
Hjónaherbergi er inn af holi. Þar er parket á gólfi og góðir fataskápar.
Gengið er upp einn pall tvö þrep.
Baðherbergi er á hægri hönd, það er flísalagt í hólf og gólf, innrétting í kringum vask, upphengt salerni, handklæðaofn, sturtuklefi og vélrænt útsog.
Búið er að útbúa með léttum vegg og rennihurð annað
svefnherbergi, þar er parket á gólfi.
Stofa og eldhús er í opnu rými, þar er parket á gólfi. Borðstofa er í fallegu bogadregnu útskoti úr stofu og þar er útgengt út á timburverönd sem snýr til suðurs. Eldhús er með góðri L-laga innréttingu með flísar milli efri og neðri skápa og stæði fyrir ísskáp.
Þvottahús er sameiginilegt með miðhæðinni. Þar er stæði fyrir þvottavél og möguleiki á að vera með þurrkara við sameiginlegan bakdyrainngang, merktur 00-11 á teikningu.
Annað:
**Eignin getur verið laus við kaupsamning**-Nýtt parket á stofu og eldhúsrými
-Þak var nýlega endurnýjað og þakrennur og settur hitaþráður
-Inntak fyrir rafmagn, frárennslisrör og vatnlagnir endurnýjaðar að húsi fyrir um 30 árum
-Rafmagnstafla, tenglar og slökkvarar endurnýjaðir
-Bílastæði fyrir framan inngang
-Timburpallur sem snýr til suðurs
-Ljósleiðari
-Hellulagt einkabílastæði
-Lóð er í óskiptri sameign
-Hlutfallstala íbúðar í lóð og mannvirkjum er um 14%
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955