Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Tjarnarlundur 16 - 401 (H)
Um er að ræða þriggja herbergja íbúð á 4. og efstu hæð í mjög vel staðsettu fjölbýli á Brekkunni. Eignin er samtals 83,4 fm., þar af er sér geymsla í sameign 5,4 fm.. Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, geymslu innan íbúðar, tvö svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu, stofu og geymslu í sameign.
Forstofa er með parket á gólfi og opnu fatahengi.
Hol er með parket á gólfi og tengir öll rými íbúðarinnar.
Eldhús er með parket á gólfi, eldri innréttingu með stæði fyrir uppþvottavél og ísskáp og glæsilegt útsýni til norðurs.
Geymsla innan íbúðar er inn af eldhúsi.
Svefnherbergi eru tvö, bæði með parket á gólfi og fataskápar í stærra herberginu. Búið er að skipta um glugga í báðum herbergjum.
Baðherbergi er með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara, innréttingu í kringum vask, sturtu aðgreinda með glerskilrúmi og handklæðaofn.
Stofa er björt og rúmgóð með parket á gólfi og þaðan er gengið út á svalir til suðurs.
Annað:Samkv. fyrri eiganda-Skipt um alla tengla og rofa í ibúðinni 2015
-Skipt um gler í herbergisgluggum á norður hlið.
-Eignin var sprunguviðgerð og máluð 2021.
-Skipt um þakdúk og þakkant 2023
-Frábær staðsetning, stutt í íþróttasvæði KA, verslun og ýmis konar þjónustu
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955