Einilundur 4 c 0 600 Akureyri
Einilundur 4 c 0 , 600 Akureyri
74.900.000 Kr.
Tegund Raðhús
StærÐ 97 m2
HERBERGI 4 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 3 1 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1970 52.650.000 65.750.000 0
Tegund Raðhús
StærÐ 97 m2
HERBERGI 4 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 3 1 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1970 52.650.000 65.750.000 0
Opið hús: 07. maí 2026 kl. 16:30 til 17:00.

Eignin verður sýnd fimmtudaginn 7. maí 2026 milli kl. 16:30 og kl. 17:00.

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Einilundur 4 C

Um er að ræða fjögurra herbergja raðhúsíbúð á einni hæð með tveimur inngöngum á vinsælum stað á Brekkunni. Eignin er samtals 97,6 fm og er mjög mikið endurnýjuð að innan og húsið fengið viðhald að utan. 

**Laus við kaupsamning**


Eignin skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi, eitt af því forstofuherbergi, hol, baðherbergi, stofu, eldhús, þvottahús og geymslu inn af því. 

Forstofa er með parket á gólfi og opnu fatahengi. 
Eitt af þremur svefnherbergjum er staðsett við hlið forstofu, þar er parket á gólfi.
Hol er með parket á gólfi. 
Stofa er rúmgóð með parket á gólfi og útgengt út á hellulagða verönd og garð sem snýr til vesturs. 
Eldhús er með parket á gólfi, nýleg IKEA innrétting með innbyggðan ísskáp og uppþvottavél, bakaraofn í vinnuhæð og í enda eldhúss er lítill borðkrókur. 
Þvottahús er inn af eldhúsi og þar er annar inngangur og inntök fyrir vatnslagnir. 
Ágæt geymsla er svo inn af þvottahúsi, búið að opna stærra gat á milli rýmanna. 
Baðherbergi er allt endurnýjað með flísar á gólfi, reyklitað sturtugler, upphengt salerni, handklæðaofn og vaskaskápur. 
Tvö svefnherbergi eru svo innst á holi, bæði með parket á gólfum og góðum nýlegum fataskápum í hjónaherbergi. 

Annað:
Framkvæmdir innandyra síðan 2023
-Gólfhiti
-Nýtt gólfefni - vantar parketlista
-Parket á íbúð er vatnsþolið korkparket frá Þ. Þorgrímsson (hydrocork)
-Eldhúsinnrétting endurnýjuð
-Baðherbergi endurnýjað
-Ný rafmagnstafla
-Tenglar og slökkvarar
-Nýjar innihurðir
-Nýjar vatnslagnir frá inntaki
-Nýmálað allt nema geymsla og þvottahús

-Gler í húsinu var endurnýjað 1995, stétt og bílaplan fyrir framan inngang með hitalögnum  og nýjir ljósastaurar og veggljós 2019.
-Þá var húsið múrviðgert og málað að utan ásamt því að settir voru plastlistar á gler 2020.
-Húsið er mjög snyrtilegt að utan og búið að útbúa upphitað bílaplan beint fyrir framan eignina en auk þess er bílastæði við suður enda á raðhúsinu. Lóð bakvið hús snýr til vesturs, þar er eldri hellulögð verönd og gras. 
-Frábær staðsetning, stutt í ýmsa þjónustu við Kaupang og Hrísalund auk leik- og grunnskóla, ásamt íþróttasvæði KA

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila.    (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 


Frekari upplýsingar:
[email protected]
[email protected]
[email protected]
[email protected]

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.