Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Smárahlíð 10 C (202)Um er að ræða tveggja herbergja íbúð á 2. hæð í fjölbýlishúsi með svalir til vesturs.
** Eignin er laus til afhendingar við samningsgerð **Eignin skiptist í forstofu, geymslu, hol, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og stofu.
Forstofa með parket á gólfi og opnu fatahengi.
Hol með parket á gólfi.
Stofa með parket á gólfi, rúmgott rými með útgengi út á svalir til vesturs.
Eldhús með parket á gólfi, þar er borðkrókur, upprunaleg innrétting með stæði fyrir ísskáp og uppþvottavél. Gluggi til vesturs úr eldhúsi.
Svefnherbergi er með parket á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er uppgert, flísalagt í hólf og gólf, sturta með glerskilrúmi, upphengt salerni, innréttingu í kringum vask og handklæðaofn. Tengi fyrir þvottavél er á baðherbergi.
Geymsla á jarðhæð í sameignarrými fylgir eigninni og þar er einnig hjóla og vagnageymsla.
Annað: -Nokkuð er um framkvæmdir í húsfélaginu meðal annars endurnýjun á gagnstétt, frárennslislögnum og fl., sjá húsfélagsyfirlýsingu.
-Stutt frá leik- og grunnskóla, heilsugæslu, bakarí og fl.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955