Opið hús: 13. maí 2026 kl. 16:15 til 17:00.Opið hús: Eignin verður sýnd miðvikudaginn 13. maí 2026 milli kl. 16:15 og kl. 17:00.
Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Víkurgil 15
Virkilega vel skipulögð fjögurra herbergja enda raðhúsaíbúð á einni hæð með sambyggðum bílskúr. Staðsett efst í byggðinni í Giljahverfi með frábæru útsýni jafnt til suðurs og vesturs eins og yfir bæinn. Skjólsæll timburpallur sem snýr til suðvesturs. Eignin er samtals 130,5 fm. og skiptist í forstofu, þvottahús og geymslu, stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og bílskúr sem er 23,6 fm..
Forstofa er með flísar á gólfi og fataskáp.
Þvottahús er einnig með flísar á gólfi, sérsmíðaða innréttingu með stæði fyrir þvottavél og þurrkara sem geta fylgt, vask og mjög góðu skápaplássi. Þar er einnig stæði fyrir frystiskáp, gluggi með opnanlegu fagi og innangengt er í bílskúr um brunahurð.
Hol eða borðstofa eins og það er nýtt í dag er með parket á gólfi.
Stofa er með parket á gólfi, bjart rými þaðan sem er útgengt út á verönd til suðvesturs.
Eldhús er með flísar á gólfi, stór og plássmikil innrétting með eyju og háf yfir henni. Stæði fyrir ísskáp og uppþvottavél en hún fylgir og bakaraofn í vinnuhæð. Góður borðkrókur er í eldhúsi.
Gangur er með parket á gólfi.
Svefnherbergi eru þrjú, öll með parket á gólfi og fataskápar í tveimur þeirra.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, stór innrétting í kringum vask, salerni, handklæðaofn og baðkar með sturtutækjum. Opnanlegt fag á glugga.
Bílskúr er með rafdrifinni innkeyrsluhurð, flísar á gólfi og geymsluloft yfir hluta aðgengilegt um fastan timburstiga.
Annað:-Íbúðin var svo gott sem öll máluð fyrir um ári síðan þar með talin loft.
-Glæsilegur pallur sem snýr til suðvesturs er sólríkur og skjólsæll
-Fyrir framan húsið er malbikað bílaplan með hitalögnum í hluta, kynnt með affalli.
-Beð og gráir veggir nýlega málaðir
-Upptekin loft í alrými, stofu og eldhúsi
-Ný Grohe sturtutæki fylgja
-Rólegt svæði í mikilli nálægð við ósnerta náttúru
-Til afhendingar haust 2026
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955