Fasteignasalan Byggð 464-9955 - EinkasalaKlettastígur 14 - 101
Mjög skemmtileg og vel skipulögð þriggja herbergja neðri sérhæð í tvíbýlishúsi innst í botnlanga í Klettastíg með sér inngangi. Virkilega rólegt umhverfi og mikið næði. Eignin sem hefur verið mikið endurnýjuð er 72,8 fm..Eignin skiptist í anddyri, geymslurými undir stiga, eldhús, þvottahús, kalda geymslu undir stiga, stofu og tvö svefnherbergi, annað skráð sem geymsla og baðherbergi. Anddyri er með flísar á gólfi og opnu fatahengi.
Eldhús er með parket á gólfi, borðkrók, nýlegri hvítri innréttingu með stæði fyrir innbyggðan ísskáp og uppþvottavél sem fylgja og ágætu bekkjarplássi.
Þvottahús er inn af eldhúsi, þar eru flísar á gólfi og stæði fyrir þvottavél og þurrkara.
Köld geymsla er inn af þvottahúsi undir stiga.
Svefnherbergi eru tvö, bæði með parket á gólfi og fataskápum. Rennihurð er inn í stærra herbergið við hlið stofu.
Baðherbergi er með flísar á gólfi og í kringum votrými. Á baðinu er handklæðaofn og vélrænt útsog.
Stofa er björt með parket á gólfi.
Geymsla undir stiga við forstofu, þar er lagnakista fyrir gólfhita og rafmagnstafla.
Annað:-Gólfhiti er í íbúð
-Nýleg innrétting bæði í eldhúsi og á baðherbergi
-Nýlegt parket
-Húsið var nýlega málað að utan
-Eitt bílastæði fylgir eigninni
-Sér rafmagnstafla fyrir eignina staðsett í geymslu undir stiga
**Getur verið laus fljótlega**Hlutfallstala eignarinnar í lóð og mannvirkjum er rétt um 25% eins og í hitakostnaði sem er á einum mæli en neðri hæð greiðir áðurnefnt hlutfall af honum.
Samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu er lóð í óskiptri sameign en þó er á lóðaruppdrætti einnig afmarkaður flötur í norðvesturhorni lóðar til sérafnota íbúðar á 1. hæð, s.s. byggingu sólpalls, sem þó hindarar ekki gangandi umferð fyrir húshorn. Einnig er afmarkaður flötur efri hæðar í suðausturhorni lóðar fyrir m.a. heitan pott.
Vart var við leka og eru greinileg ummerki um það í kaldri geymslu undir stiga og steyptum stigapalli efri hæðar. Samkvæmt eiganda hefur eigandi efri hæðar þegar brugðist við og lagað þann hluta utan frá og ekki hefur orðið vart við frekari rakaummerki síðan. Stiginn er þó gamall og mögulega í framtíðinni frekari aðgerða þörf.
Áætlað er að fara í þakið á næstunni, jafnvel í sumar og er kostnaður eignarinnar áætlaður núna ca. 2 mkr. en heildaráætlun hljóðar upp á 7,5 mkr., sem er óformlegt tilboð frá verktaka.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955