Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala Hafnarstræti 34 - 101
Um er að ræða tveggja herbergja íbúð á neðri hæð í fjórbýli. Húsið er timbureiningahús, í húsinu eru fjórar íbúðir, tvær uppi og tvær niðri. Við inngang hússins er sameign með sér geymslu rými fyrir hverja íbúð. Komið er inn í sameiginlegan inngang þaðan er gengið í íbúðina. íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, baðherbergi/þvottur og svefnherbergi.
Forstofa er með góðum skáp. Úr forstofu er gengið
eldhús, þar er innrétting frá IKEA, innbyggð uppþvottavél útgengt er úr eldhúsi út á verönd til austurs.
Stofa er nokkuð rúmgóð og björt með parket á gólfi, útganga er á verönd úr stofu til vesturs.
Svefnherbergi er með parket á gólfi og fataskáp. Baðherbergi er klætt með plötum að innan þar er innrétting við vask, upphengt wc, handklæðaofn og sturtuklefi. Tengi fyrir þvottavél á baði.
Framan við húsið er hjóla og vagnageymsla sem er sameiginleg fyrir allar íbúðir og bílastæði eru sunnan og vestan við hús.