Opið hús: 03. júní 2026 kl. 16:30 til 17:00.Opið hús: Eignin verður sýnd miðvikudaginn 3. júní 2026 milli kl. 16:30 og kl. 17:00.
Fasteignasalan Byggð 464-9955Davíðshagi 6 - 101Um er að ræða fallega fjögurra herbergja íbúð á jarðhæð í austurenda í fjölbýlishúsi nyrst í Hagahverfi. Eignin er skráð 94,4 fm. að stærð þar af er geymsla 8,8 fm. Góð verönd sunnan við hús, mjög snyrtileg sameign og rúmgóð geymsla.
Eignin skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og stofu og eldhúsi í opnu rými. Eigninni tilheyrir rúmgóð geymsla í kjallara. Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergin eru þrjú, öll eru þau rúmgóð með parketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, góð innrétting við vask ásamt speglaskáp, upphengt wc og sturta með glerhurðum. Stæði í innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Eldhús og stofa í opnu rými með parket á gólfi. Góð innrétting í eldhúsi með flísum milli efri og neðri skápa, innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur með frysti fylgir með við sölu eignar. Úr rýminu er hurð út á steypta verönd.
Sér 8,8 fm.
geymsla sem er staðsett í sameignarrými í kjallara, geymslan er með flísum á gólfi og hillum. Sameignin er afar snyrtileg með flísum á gólfi, gott aðgengi austan við hús inn í sameign hússins.
Annað: - Sér inngangur í íbúð
- Íbúðin er nýlega máluð
- Gólfhiti er í öllum rýmum íbúðar.
- Innihurðir eru úr plastlagðri struktur-eik sem og innréttingar í íbúðinni.
- Stækkun á verönd til vesturs.
- Mynddyrasími
- Snyrtileg sameign.
- Snjóbræðsla í stétt að hluta fyrir framan hús.
- Rafhleðslustöðvar fyrir 4 bíla framan við hús.
- Stutt í náttúruparadís í Naustaborgum og Kjarnaskóg
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955