Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Geldingsá, lóð nr. 14
Lækjarbrekka
Um er að ræða sumarhús á fallegum útsýnisstað í Vaðlaheiði gengt Akureyri. Húsið er 52,10 fm. að stærð og stendur á 4670 fm. leigulóð, tvö svefnherbergi eru í húsinu auk svefnlofts, góð verönd við húsið með heitum potti og glæsilegu útsýni. Sumarhúsið skiptist í anddyrir, tvö svefnherbergi, baðherbergi, stofu og eldhús í opnu rými og svefnloft.
Anddyri með parket á gólfi og opnu fatahengi.
Svefnherbergin eru tvö bæði með parket á gólfum.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, innrétting við vask, sturta og opnanlegur gluggi.
Stofa og eldhús í opnu rými með parket á gólfi, bjart rými með gluggum til suðurs og vesturs. Útgengi út á verönd til suðurs. Elshúsinnrétting með flísum milli efri og neðri skápa.
Svefnloft með parket á gólfi, opnanlegur gluggi og geymslurými undir súð.
Annað: - Glæsilegt útsýni
- Rafmagnskynding
- Hitakútur, staðsettur austan við hús.
- Rafmagnspottur, í lagi svo vitað sé. Hefur verið mjög lítið notaður undanfarin ár.
- Verönd sunnan og vestan við hús.
- Húsið og gluggar að utan málað 2024-2025
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955