Tröllagil 14 - 202 0 603 Akureyri
Tröllagil 14 - 202 0 , 603 Akureyri
59.900.000 Kr.
Tegund Fjölbýli
StærÐ 82 m2
HERBERGI 3 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 2 1 Sameig.
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1991 52.870.000 51.850.000 0
Tegund Fjölbýli
StærÐ 82 m2
HERBERGI 3 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 2 1 Sameig.
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1991 52.870.000 51.850.000 0
Opið hús: 08. júní 2026 kl. 16:15 til 17:00.

Opið hús: Eignin verður sýnd mánudaginn 8. júní 2026 milli kl. 16:15 og kl. 16:45.

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Tröllagil 14 - 202 

**Laus við kaupsamning**


Um er að ræða þriggja herbergja íbúð á 2. hæð í lyftuhúsi ásamt sér stæði í bílgeymslu. Svalir til vesturs með góðu útsýni. Eignin er samtals 82,5 fm. auk um 3 fm. sérgeymslu í sameign. 

Íbúðin skiptist í forstofu, geymslu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og stofu. Sameiginlegt þvotthús á hæðinni sem þrjár íbúðir deila og er ekki hluti af uppgefnum fm. fjölda. 

Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp. 
Stofa er rúmgóð með parketi á gólfi, útgengi út á svalir til vesturs með góðu útsýni. 
Eldhús er með flísum á gólfi, eldhúskrók, innrétting með flísum milli efri og neðri skápa, bara útraganlegar skúffur í neðri hluta innréttingar, ekki skápar og bakaraofn í vinnuhæð. 
Svefnherbergin eru tvö, bæði með dúk á gólfum og fataskápum. 
Baðherbergi hefur verið endurnýjað. Þar eru flísar á gólfi og á gólfi og hluta veggja, sturtuklefi, upphengt salerni, opnanlegur gluggi og góð innrétting við vask sem er endurnýjuð að hluta. 
Geymslurnar eru tvær, önnur innan íbúðar og hin í sameignarrými. Dúkur á gólfi í geymslu innan íbúðar og hillur í báðum þeirra.  
Þvottahús er sameiginlegt og er á sömu hæð og íbúðin, þrjár íbúðir deila þvottahúsi og er hver með sína vél, innrétting með vask og útgengi út á litlar svalir úr þvottahúsi. 

Annað: 
-Húsið málað að utan 2023
-Skipt um gler í íbúð 2016 
-Frábært útsýni
-Mynddyrasími
-Ljósleiðari  
-Sér stæði í bílgeymslu nálægt inngangi
-Allt klárt til að tengja rafmagn að bílastæði fyrir hleðslustöð
-Rafdrifnar hurðar í sameign að bílakjallara
-Snyrtileg sameign
-Stutt í leik- og grunnskóla, verslun og ýmsa aðra þjónustu. 


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 

Frekari upplýsingar:
[email protected]
[email protected]
[email protected]

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.