Keilusíða 7 - 102 0 603 Akureyri
Keilusíða 7 - 102 0 , 603 Akureyri
41.900.000 Kr.
Tegund Fjölbýli
StærÐ 51 m2
HERBERGI 2 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 1 1 Sameig.
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1982 36.000.000 32.600.000 0
Tegund Fjölbýli
StærÐ 51 m2
HERBERGI 2 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 1 1 Sameig.
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1982 36.000.000 32.600.000 0
Opið hús: 09. júní 2026 kl. 16:15 til 17:00.

Opið hús: Eignin verður sýnd þriðjudaginn 9. júní 2026 milli kl. 16:15 og kl. 17:00.

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Keilusíða 7 - 102

**Laus til afhendingar fljótlega
**Frábær fyrstu kaup

Glæsileg og mjög mikið endurnýjuð 2 herbergja íbúð á 1. hæð í fjölbýli í Síðuhverfi rétt við skóla og leikskóla. Eignin er skráð 51,1 fm. samkvæmt HMS auk geymslu í sameign.  

Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, baðherbergi og svefnherbergi auk sér geymslu í sameign. 

Forstofa
er með parket á gólfi og góðum fataskáp.
Eldhús er með vandaða eikar innréttingu með flísum milli efri og neðri skápa og ljósri bekkjarplötu. Stæði fyrir uppþvottavél og ísskáp er í innréttingu (sem fylgir) og bakaraofn í vinnuhæð. 
Stofa er björt, með parket á gólfi og útgengt út á svalir til vesturs, snýr vel við sólu. 
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, hvíttuð eikar innrétting, upphengt salerni, sturta með sturtugleri, handklæðaofn og innrétting með skápum og skúffu og stæði fyrir þvottavél. 
Svefnherbergi er með parket á gólfi og góðum fataskáp. 

Geymsla í sameign er með lakkað gólf.

Sameign í kjallara er snyrtileg og stór. Þar eru fyrir utan geymsluna, hjóla, og vagnageymsla, annar inngangur með opnum skápum, gufa og sturtuaðstaða með þremur sturtum, lagnarými, þurrkherbergi þar sem er meðal annars aðstaða fyrir þurrkara og leikstofa/föndur merkt á teikningum. Það er í dag nýtt sem aðstaða fyrir húsfundi en hefur fleiri möguleika á nýtingu. 

Annað: 
-Eignin var mjög mikið endurnýjuð um 2018, þar á meðal;
     -Vínilparket og flísar á allri íbúðinni
     -Innihurðir
     -Fataskápar
     -Innréttingar bæði í eldhúsi og á baði
     -Baðherbergi allt endurnýjað, sturta salerni og fleira
-Ljósleiðari
-Frábær staðsetning, stutt í leik- og grunnskóla ásamt líkamsræktarstöðinni Bjargi

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 

Frekari upplýsingar:
[email protected]
[email protected]
[email protected]

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.