Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Davíðshagi 4 - 503
Um er að ræða stúdio íbúð á 5. og efstu hæð í lyftuhúsi með sér stæði í bílageymslu nyrst í Hagahverfi. Mjög gott útsýni frá íbúð og svalir með svalalokun. Eignin skiptist í anddyri, alrými með stofu og eldhúsi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og geymslu í sameign. Eignin er samtals 36,1 fm. og þar af er sér geymsla í sameign 3,4 fm. að stærð.
Anddyri er með góðum skápum og við hlið þeirra innst við alrými er stæði fyrir ísskáp.
Baðherbergi með vínilparket gólfi og flísar í á gólfi og vegg í sturtu, góð innrétting við vask og stæði fyrir þvottavél og þurrkara, upphengt salerni og sturta með vængjahurðum.
Eldhús og stofa eru í sameiginlegu rými með flísum milli efri og neðri skápa, útgengi úr rýminu um rennihurð út á rúmgóðar svalir til suðurs. Svalir með flísum og rafmagnsgólfhita. Svarlirnar eru með svalalokun og búið að einangra svalahandrið.
Vínilparket er á íbúð, hljóðdempandi plötur í loftum og loftskiptikerfi.
Annað: - Svalalokun
- Gólfhiti í öllum rýmum
- Loft í íbúð fyrir utan baðherbergi eru klædd hljóðdempuðum loftaplötum
- Ljósleiðari tengdur
- Loftskiptikerfi í íbúð
- Sameiginlegt leiksvæði með sparkvelli í yfirbyggðu leikjahúsi á baklóð
- Sér- og sameignargeymslur í kjallara
- Sér stæði í bílkjallara
- Stutt í náttúruparadís í Naustaborgum og Kjarnaskóg
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955