Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Sómatún 5 - 201
Um er að ræða bjarta þriggja til fjögurra herbergja íbúð á 2. hæð í fjórbýli. Góðar svalir til suðurs með útsýni. Eignin skiptist í forstofu, þvottahús/geymslu, baðherbergi, tvö svefnherbergi, geymslu innan íbúðar með skáp sem nýtist sem herbergi, stofa og eldhús í opnu rými.
Forstofa með flísum á gólfi og góðum fataskáp. Þvottahús er innaf forstofu.
Þvottahús með opnanlegum glugga og flísum á gólfi, góð innrétting með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Baðherbergið með flísum á gólfi og veggir að hluta. Baðkar með sturtutækjum og glerskilrúmi og handklæðaofn.
Svefnherbergin eru tvö og eru þau rúmgóð með góðum skápum.
Geymsla er innan íbúðar sem er skráð á teikningum 8,5 fm. að stærð með stórum glugga og góðum fataskáp. Nýtist vel sem þriðja svefnherbergið.
Stofa og eldhús í opnu rými, gluggar til þriggja átta. Úr stofunni er farið út á stórar svalir til suðurs og er þar afar gott útsýni. Flísar milli efri og neðri skápa í eldhúsi, bakaraofn í vinnuhæð og stæði fyrir uppþvottavél í innréttingu.
Flísar eru á forstofu, þvottahúsi og baðherbergi. Nýlegt parket í öðrum rýmum íbúðar.
Sameiginleg geymsla/tæknirými á fyrstu hæð.
Annað:- Gott útsýni frá íbúð
- Gólfhiti
- Ljósleiðari
- Stutt er í leik- og grunnskóla og verslun.
- Stutt í útivistarparadís í Naustaborgum, Kjarnaskóg og golfvöllinn.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955