Fasteignasalan Byggð 464-9955
Jaðarstún 12 - 202
**Laus til afhendingar við kaupsamning**
Virkilega vel skipulögð og björt 3-4 herbergja íbúð á 2. hæð í fjögurra íbúða nýlegu húsi á vinsælum stað nyrst í Naustahverfi. Eignin er samtals 94,3 fm. auk þess eru góðar svalir sem snúa til vesturs. Eignin skiptist í forstofu, stofu og eldhús í opnu rými, geymslu, tvö svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu.
Forstofa með flísar á gólfi og fataskápum.
Stofa og eldhús er í opnu og björtu rými þaðan sem er mjög gott útsýni. Parket á gólfum og mjög rúmgóð innrétting í eldhúsi þar sem innbyggð uppþvottavél og ísskápur, sem fylgja og bakaraofn í vinnuhæð. Úr eldhúsi er útgengt á svalir sem snúa til vesturs og eru flísalagðar.
Svefnherbergi eru tvö, bæði með parket á gólfum og fataskápum.
Geymsla sem getur vel nýst sem
svefnherbergi er einnig með parket á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með ljósum flísum á veggjum og dökkum á gólfi, innrétting í kringum vask, sturta, upphengt salerni, handklæðaofn og innrétting í kringum þvottavél og þurrkara sem fylgja.
Annað: -Uppþvottavél, ísskápur, þvottavél og þurrkari fylgja
-Allar gardínur sem eru til staðar fylgja einnig
-Sameiginleg geymsla í lagnarými er undir stigapalli
-Flísar á svölum
-Ljósleiðari
-Gólfhiti
-Samkv. eignaskiptasamningi fylgja tvö stæði íbúðinni á sameiginlegum bílstæðum fyrir framan húsið
-Glæsilegt útsýni úr eigninni og af svölum
-Vinsæl staðsetning, rétt við golfvöllinn að Jaðri, matvöruverslun og stutt í leik- og grunnskóla
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955