Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Skálatún 27 - 202
**Laus til afhendingar við kaupsamning**Snyrtileg fjögurra herbergja íbúð á efri hæð í tengihúsi. Eignin er skráð samtals 110 fm. að stærð. Stutt í leik- og grunnskóla, verslun, golfvöll og Naustaborgir. Eignin skiptist í forstofu, geymslu, þvottahús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, stofu og eldhús.
Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp.
Geymsla og þvottahús er innaf forstofu með flísum á gólfi og hillum, innaf geymslu er þvottahús með glugga, rennihurð í þvottahúsið. Bekkplata með vask og efri skápum og stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnu hæð ásamt efri skápum.
Svefnherbergin eru þrjú, öll eru þau með parketi á gólfum og fataskápum.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggir flísalagðir að mestu. Bæði baðkar og sturta, handklæðaofn og innrétting við vask.
Stofan björt með parketi á gólfi, útgengi er út á svalir til norðurs úr stofu.
Eldhús með flísum á gólfi, flísar milli efri og neðri skápa, bakaraofn í vinnuhæð og stæði fyrir uppþvottavél í innréttingu.
Eigninni tilheyrir hlutdeild í inntaksrými/geymslu sem tvær íbúðir deila með sér.
Annað: - Eignin er laus til afhendingar við samningsgerð
- Gott útsýni frá íbúð
- Sér inngangur
- Stutt í leik og grunnskóla.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955