Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala Tjarnarlundur 14 A
Um er að ræða fallega og mikð endurnýjaða þriggja herbergja íbúð á jarðhæð í fjölbýlishúsi. Eignin er skráð samtals 76 fm. að stærð þar af er geymsla 5,2 fm.
Eignin skiptist í anddyri, baðherbergi með þvottaaðstöðu, tvö svefnherbergi, eldhús og stofu. Eigninni fylgjir sér geymsla í sameign. Anddyri með parket á gólfi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, innrétting við vask með stæði fyrir þvottavél. Upphengt wc, sturta með glerskilrúmi, handklæðaofn. Mest allt endurnýjað á baði nema hluta af veggflísum.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með parket á gólfi og góður fataskápur í stærra herberginu.
Eldhús með parket á gólfi, góð innrétting með stæði fyrir uppþvottvél. Bakaraofn í vinnuhæð ásamt auka ofni sem er líka örbylgjuofn. Borðkrókur í eldhúsi.
Stofa og borðstofa rúmgott rými með parket á gólfi, útgengi út á timburverönd til suðurs úr stofu.
Annað: - Íbúðin mikið endurnýjuð 2024, ný gólfefni, baðherbergi endurnýjað fyrir utan veggflísar að hluta, eldhús endurnýjað, bætt var við fleiri tenglum í íbúð og fl.
- Nýjir gluggar og svalahurð 2025
- Þakið endurnýjað og nýr PVC dúkur 2023
- Húsið málað að utan 2021
- Ljósleiðari.
- Stutt í leik- og grunnskóla, verslun og fleira.
- Timburverönd með gólfi að hluta, þarfnast mögulega skoðunar.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955