Fasteignasalan Byggð 464-9955 - EinkasalaArnarsíða 5
Falleg fjögurra herbergja raðhúsaíbúð á einni hæð með sambyggðum bílskúr, góð skjólsæl verönd vestan við hús. Eignin er skráð samtals 138,2 fm. að stærð þar af er bílskúr 25 fm. Íbúðin skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, stofa og eldhús í opnu rými, þvottahús, bílskúr og geymsla.
Forstofa með flísum á gólfi.
Svefnherbergin eru þrjú, öll eru þau með parket á gólfum og skápar eru tveimur þeirra, stór skápur með rennihurðum í hjónaherbergi. Úr hjónaherbergi er útgengi út á verönd.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, baðkar með sturtutækjum og glervæng, innrétting við vask ásamt góðum skáp, upphengt wc, handklæðaofn og lítill opnanlegur gluggi.
Stofa og eldhús í opnu rými með parket á stofurými og flísar á eldhúsrými. Góð innrétting í eldhúsi með gashelluborði, bakaraofn í vinnuhæð, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél sem fylgja. Gott skápapláss í eldhúsi. Eyja með góðu vinnurými, skúffur og skápar í eyjunni. Úr alrými er útgengi út á verönd.
Þvottahús með flísum á gólfi er milli íbúðar og bílskúrs, innrétting með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Auka inngangur um þvottahús og einnig innangengt í bílskúr í gegnum þvottahús.
Bílskúr er flísalagður, rafknúinn hurðaopnari og innaf bílskúrnum er
geymsla. Úr geymslunni er gengið út á verönd.
Framan við hús er ruslatunnuskýli og hellulögð verönd með timbur skjólveggjum.
Annað:- Stutt í leik- og grunnskóla.
- Hiti er í öllum gólfum
- Hiti í malbikuðu bílaplani framan við bílskúr og steyptum stéttum framan við hús.
- Góð steypt verönd vestan við hús með markísu og garður þar fyrir utan.
- Ljósleiðari
- ATH. heitur pottur á verönd og pottastýring fylgir ekki. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955