Stangarholt 36 105 Reykjavík (Austurbær)
Stangarholt 36 , 105 Reykjavík (Austurbær)
94.500.000 Kr.
Tegund Fjölbýli
StærÐ 119 m2
HERBERGI 5 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
2 3 0 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1951 70.550.000 93.150.000 0
Tegund Fjölbýli
StærÐ 119 m2
HERBERGI 5 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
2 3 0 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1951 70.550.000 93.150.000 0

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955

Falleg mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð ásamt tveggja herbergja íbúð á neðri hæð.   Íbúðirnar er hægt að sameina og gera að einni stærri íbúð.

Lýsing íbúðar á 1. hæð: Gengið er inn á hæðina um sameiginlegan inngang með einni annari íbúð sem er á 2. hæð hússins. Íbúðin samanstendur af litlu holi, hjónaherbergi, baðherbergi, barnaherbergi, eldhúsi, stofu og stiga sem liggur niður í aukaíbúð, núverandi eigendur hafa útfært geymslu aðstöðu við neðri enda stigans en auðvelt er að fjarlægja hana og sameina íbúðirnar aftur. Góðar suðursvalir. Þá hafa núverandi eigendur sett tengi fyrir þvottavél í geymslu undir stiga í sameign.
Lýsing aukaíbúðar í kjallara: Gengið er inn um sameiginlegan inngang í kjallara. Íbúðin sem er skráð á sama fastanúmer og íbúð 1. hæðar samanstendur af eldhúsi, baðherbergi, stofu og svefnherbergi. Þá er lítill geymsluskápur undir stiga.

Nánari lýsing íbúðar á 1. hæð.
Gott hjónaherbergi með stórum fataskáp.
Barnaherbergi með fataskáp (var áður eldhús).
Baðherbergi með glugga og viftu, baðkar, flísalagt með flísum frá Ebson.
Tvær stofur og er eldhús inni í annarri stofunni, endurnýjuð falleg eldhúsinnétting frá Kvik með stórri eyju. Stór hurð með síðum glugga út á suðursvalir. Sjarmerandi eldri pottofnar í stofum sem tengdir voru að nýju 2023.
Geymsla undir stiga þar sem tengi er fyrir þvottavél, í sameign er einnig skápur.

Sameiginleg köld geymsla undir úti tröppum.
Gluggar eru á þrjá vegu í íbúðinni sem hafa allir verið endurnýjaðir á síðustu árum. Vegna legu á húsinu í enda götunnar er garðurinn gróinn og óvenju stór, þá er gott útsýni að Háteigskirkju og birtan mikil inni í íbúðinni. Sameiginlegt malarplan með 2. hæð hefur verið útbúið á þessu ári með innkeyrslu frá Nóatúni.
2023 var íbúðin flotuð og vínyl parket lagt á íbúðinni í síldarbeinsmunstri að undanskildu baðherbergi sem var flísalagt. Þá var sett svart rafmagnsefni og svört blöndunartæki.
 
Nánari lýsing aukaíbúð í kjallara. Eldhús með glugga og gólffísum. Stofa og innan af stofunni er flísalagt sturtubaðherbergi með glugga. Svefnherbergi með skáp.
Vínyl parket í sama lit og á efrihæð sem var lagt á gólfið í byrjun árs 2024. Íbúðin er hálf niðurgrafin en góðum gluggum og birta ágæt. Gluggar hafa verið nýlega endurnýjaðir.
 
Vel staðsett eign á eftirsóttum stað í Holtunum. Aukaíbúð með mögulegum leigutekjum. Mikið endurnýjuð eign. Bílskúrsréttur að fengnu byggingarleyfi og samþykktum.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 


Frekari upplýsingar:
[email protected]
[email protected]
[email protected]
[email protected]

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.