Svarfaðarbraut 19 - 102 norðurendi 620 Dalvík
Svarfaðarbraut 19 - 102 norðurendi , 620 Dalvík
96.500.000 Kr.
Tegund Parhús
StærÐ 140 m2
HERBERGI 3 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 2 1 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
0 0 5.840.000 0
Tegund Parhús
StærÐ 140 m2
HERBERGI 3 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 2 1 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
0 0 5.840.000 0

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala 

Svarfaðarbraut 19 - 102
 
Ný glæsileg þriggja herbergja parhúsaíbúð með sambyggðum bílskúr á frábærum stað á Dalvík, Íbúðin er í norðurenda.  Eignin er samtals 140,3 fm. að stærð þar af er íbúð 111,8 fm. og bílskúr 28,5 fm.  Gólfhiti og loftskiptikerfi er í íbúð, hvítar innihurðir og allar innréttingar koma frá Brúnás. Eignin afhendist fullbúin með gólfefnum. Steypt verönd eins og teikningar sýnir. 
 
Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu í opnu rými, baðherbergi, tvö svefnherbergi, þvottahús/geymslu og bílskúr. 

Anddyri með parketi á gólfi. 
Eldhús og stofa í opnu rými, útgengi út á pall úr stofu. Góð innrétting í eldhúsi ásamt eyju, þar eru skúffur og helluborð. Stæði fyrir ísskáp, uppþvottavél og bakaraofn í vinnuhæð.
Baðherbergi með flísum á gólfi og í votrými í sturtu. Sturta með glerskilrúmi og upphengt wc. Góð innrétting við vask ásamt speglaskápum. Útgengi er út á lóð til austurs frá baðherbergi. 
Svefnherbergin eru tvö bæði eru með parketi á gólfi og fataskápum.
Þvottahús/geymsla, góð innrétting með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Loftræstistokkur/stýrikerfi er í skáp fyrir ofan þvottavél og þurrkara og í honum er því ekkert bak eða hillur. 
Bílskúr með auka inngangi og er einnig innangegnt í gegnum þvottahúsi. Rafdrifin bílskúrshurð. Tvö bílastæði verða framan við hús fyrir hverja íbúð. 

*Athugið að innréttingar og gólfefni í vefsjánni endurspegla ekki endanlegt útlit þeirra við afhendingu. 
 
Laus til afhendingar í haust
Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar þess er óskað
Verktaki: Trétverk ehf.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 

Frekari upplýsingar:
[email protected]
[email protected]
[email protected]
[email protected]

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.