Borgarhlíð 4 c 0 603 Akureyri
Borgarhlíð 4 c 0 , 603 Akureyri
87.900.000 Kr.
Tegund Raðhús
StærÐ 134 m2
HERBERGI 5 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 4 2 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1979 68.390.000 74.500.000 0
Tegund Raðhús
StærÐ 134 m2
HERBERGI 5 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 4 2 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1979 68.390.000 74.500.000 0

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Borgarhlíð 4 E

Mjög vel staðsett og vel skipulögð 5 herbergja raðhúsaíbúð með stakstæðum bílskúr á vinsælum stað í Glerárhverfi. Húsið snýr vel við sólu en stór timburverönd með geymsluskúr snýr til vesturs. Búið er að byggja yfir svalir efri hæðar. Eignin er skráð samkvæmt HMS 134,1 fm. en þar af er bílskúr 23,1 fm.. 

**Bílskúr**
**Skúr á lóð**
**Þak endurnýjað**
**4 svefnherbergi og sér þvottahús**


Eignin skiptist í forstofu, þvottahús og geymslu, snyrtingu, eldhús og stofu á neðri hæð og baðherbergi og fjögur svefnherbergi á efri hæð. 

Neðri hæð: 
Forstofa er með flísar á gólfi og þar er gólfhiti og opið fatahengi.
Þvottahús og geymsla er inn af forstofu, þar eru sömu flísar og í forstofu á gólfi með hita, stæði fyrir þvottavél g þurrkara og vaskur. Inn af þvottahúsi er sturta.
Snyrting er einnig við forstofu, þar eru flísar á gólfi, salerni, vaskur og þar er einnig gólfhiti. Rennihurðir eru bæði á snyrtingu og þvottahús.
Stofa og borðstofa er rúmgóð með parket á gólfi og þaðan er gengið út á timburverönd sem snýr til vesturs með geymsluskúr sem er óeinangraður. 
Eldhús er með parket á gólfi, góðri innréttingu sem hefur verið endurnýjuð. Þar er stæði fyrir ísskáp og uppþvottavél og bakaraofn í vinnuhæð. Mikið skápa og bekkjarpláss. 
Geymsla er undir stiga milli hæða.  

Efri hæð:
Svefnherbergi eru fjögur, öll með parket á gólfi og fastur fataskápur í tveimur þeirra. Úr hjónaherbergi er útgengt út á yfirbyggðar svalir og því hægt að stækka bæði hjónaherbergi og herbergi við hlið þess um svalirnar. 
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, þar er innrétting í kringum vask, baðkar með sturtutækjum, salerni, ofn og opnanlegt fag.
Á holi efri hæðar er parket. 
 
Bílskúr er með rafmagnsdrifinni innkeyrsluhurð sem er með inngönguhurð. Hann er samtals 23,1 fm en innst í skúrnum er geymsla aðskilin með léttum vegg. Rafmagn er í skúrnum en ekki vatn. 

Annað: 
-Efri hæðin er líklega um 5-8 fm. stærri eftir að svalir voru yfirbyggðar
-Búið er að endurnýja útidyrahurð og bílskúrshurð 
-Þak endurnýjað 2007 og þá um leið settir nýjir gluggar á efri hæð sem snúa til vesturs 
-Pappi bræddur á bílskúrsþak 2018 og sett ál yfir þakkannt til vesturs nýlega
-Rafmagnstafla endurnýjuð
-Allar lagnir endurnýjaðar að húsvegg þegar farið var í hellulögn fyrir framan hús og nýtt inntak
-Hiti í hellulagðri stétt fyrir framan hús, affalið af íbúðinni
-Gott athafnasvæði við suður enda hússins afmarkað með hleðslusteinum
-Mjög stutt í leik- og grunnskóla, íþróttasvæði Þórs og ýmsa aðra verslun og þjónustu eins og Heilsugæsluna

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 


Frekari upplýsingar:
[email protected]
[email protected]
[email protected]
[email protected]

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.