Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Skógarhlíð 10 - 102Vel skipulögð fjögurra herbergja neðri hæð með sérinngangi í þríbýli í Hörgársveit. Stór og mikill timburverönd er við eignina með geymsluskúr. Eignin er samtals 95,2 fm. og fylgir eitt bílastæði vestan við húsið.
Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús/geymslu ásamt geymsluskúr.
Forstofa er með dökkar flísar á gólfi og fataskápum.
Gangur er með parket á gólfi en flísar innst við forstofu, á flísunum við enda gangsins eru fataskápar.
Eldhús er með parket á gólfi, ljósri innréttingu með stæði fyrir ísskáp og uppþvottavél go miklu bekkjarplássi.
Stofa er björt með parket á gólfi og þaðan er útgengt út á timburverönd.
Svefnherbergi eru þrjú, öll með parket á gólfi og fataskápur í einu þeirra.
Baðherbergi er með dúk á gólfi, sturtuklefa, innréttingu í kringum vask og opnanlegt fag í glugga.
Þvottahús er með flísar á gólfi, þar er stæði fyrir þvottavél og þurrkara, vaskur og vifta með útsogi.
Annað:-Nýlega búið að bera á allt timbur á verönd
-Geymsluskúr á verönd er óeinangraður
-Innihurðir lakkaðar hvítar
-Ljósleiðari
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955