Fasteignasalan Byggð 464-9955 - EinkasalaHafnarstræti 34 - 202
Falleg og vel skipulögð tveggja herbergja íbúð á efri hæð í nýlegu fjórbýli á frábærum útsýnisstað í Innbænum. Eignin er samtals 61,1 fm..
**Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning****Frábær fyrstu kaup****Tvennar svalir til austurs og vesturs**
**Glæsilegt útsýni á Pollinn**
**Upptekin loft í allri íbúðinni**
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, svefnherbergi og baðherbergi auk sameiginlegrar geymslu.
Forstofa er með parket á gólfi og góðum fataskápum.
Eldhús er með parket á gólfi, hvítri innréttingu frá IKEA með góðu skápa og bekkjaplássi, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél sem fylgir. Úr eldhúsi er gengið út á svalir með glæsilegu útsýni til austurs á Pollinn og Vaðlaheiðina.
Stofan er björt með parket á gólfi, upptekin loft með þakglugga og úr stofunni er útgengt út á verönd til vesturs.
Svefnherbergi er með parket á gólfi og fataskáp. Þar er upptekið loft með þakglugga.
Baðherbergi er með epoxy efni á gólfi og ljósum baðherbergisplötum á veggjum. Þar eru skúffur fyrir neðan vask, upphengt salerni, sturtuklefi, handklæðaofn og aðstaða fyrir þvottavél.
Fyrir framan húsið er sameiginleg
geymsla sem skipt er upp þannig að hver íbúð á eitt hólf.
Annað: -Gólfhiti í allri íbúðinni
-Þrefalt gler í gluggum
-Snyrtileg sameign
-Hiti í stéttum
-Bílaplan sunnan og vestan við húsið
-Ídráttarrör fyrir rafmagnshleðslu er til staðar við bílastæði
-Flott staðsetning, stutt í miðbæinn
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955