Miðteigur 1 0 600 Akureyri
Miðteigur 1 0 , 600 Akureyri
132.000.000 Kr.
Tegund Einbýli
StærÐ 163 m2
HERBERGI 4 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 3 1 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
2000 100.750.000 111.950.000 0
Tegund Einbýli
StærÐ 163 m2
HERBERGI 4 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 3 1 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
2000 100.750.000 111.950.000 0

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala 

Miðteigur 1
 
Um er að ræða mjög snyrtilegt og vel við haldið fjögurra herbergja einbýlishús á einni hæð ásamt sambyggðum bílskúr. Frábært útsýni frá eigninni og fallegur gróinn garður, sannkallaður skrúðgarður. Eignin er skráð samtals 163,5 fm. að stærð og þar af er bílskúr 43,9 fm. 

 
Eignin skiptist í, forstofu, gang, stofu, borðstofu, eldhús, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, þvottahús, bílskúr og búr. Geymsluloft er yfir hluta af eigninni og geymsluskúr á lóð fylgir. Snjóbræðsla í bílaplani framan við bílskúrshurð og einnig í stétt að bílskúrinngangi og aðalinngangi.
Steypt verönd vestan við hús og hellulögð sunnan og austan við. Tvö bílastæði við húsið.

 
Forstofa með flísum á gólfi og góðum skáp.
Gangur með flísum á gólfi, á gangi er lúga með fellistiga upp á geymsluloft sem er yfir hluta af eigninni.
Stofa og borðstofa í opnu rými með flísum á gólfi, upptekið loft í rýminu. Útgengi út á hellulagða verönd til austurs. Mjög gott útsýni.
Eldhús með flísum á gólfi, borðkrókur, góð innrétting með flísum milli efri og neðri skápa, sökkuskúffur í innréttingu, bakaraofn í vinnuhæð og stæði fyrir uppþvottavél í innréttingu. Nýlegur innbyggður ísskápur fylgir með. Nýtt keramik helluborð. Útgengi út á steypta verönd til vesturs úr eldhúsi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, sturta með glerhurðum, hornbaðkar, handklæðaofn, góð innrétting við vask og opnanlegur gluggi.
Svefnherbergin eru þrjú, öll eru þau með parket á gólfi og fataskápum.
Þvottahús er milli íbúðar og bílskúrs, flísar á gólfi, innrétting með vask og efri skápum ásamt sökkulskúffum,  stæði fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu.
Bílskúr með flísum á gólfi, inngönguhurð á suðurhlíð og rafdrifin bílskúrshurð. Góðir fataskápar ásamt bekkplötu með vask.
Búr er innaf bílskúr með flísum á gólfi og hillum.
 
Annað:
- Húsið málað að utan 2025
- Nýtt keramik helluborð og nýlegur innbyggður ísskápur.
- Búið að led væða flest ljós.
- Gler endurnýjuð í eldhúsi og stofurými.
- Geymsluskúr á lóð, steypt gólf, skúrinn óeinangraður.
- Gott geymsluloft yfir hluta af eigninni.
- Norðan við húsið er friðað svæði sem áður var áttunda flötin á gamla golfvellinum

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 


Frekari upplýsingar:
[email protected]
[email protected]
[email protected]

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.