Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Freyjunes 10 - bil 108 og 110
Um er að ræða tvö bil sem búið er að opna á milli að hluta en samtals stærð er því 138,8 fm. auk um 70 fm. vandaðs millilofts sem er ekki inni í heildarfermetrum. Gott athafnasvæði er fyrir framan bilin og bílaplan malbikað. Húsið stendur innst í botnlanga.Báðir rýmin eru með flísar á gólfi, tvær rafdrifnar innkeyrsluhurðir eru í heildarrýminu og tvær gönguhurðir. Það er því möguleiki að loka á milli aftur og útbúa salerni í því rými sem er án þess í dag.
Milliloftið er eins og áður segir um 70 fm og nær það yfir báða eignarhlutana en gengið upp um góðan stálstiga úr vestara bilinu. Milliloftið skiptist í
opið rými og
snyrtingu við vesturenda,
kaffistofu og skrifstofu. Parketi er á öllum gólfum á millilofti og á kaffstofu er innrétting með stæði fyrir ísskáp og uppþvottavél sem fylgja, auk þess fylgir tvöfaldur amerískur ísskápur sem stendur í opnu rými á millilofti. Önnur tæki og nauðsynlegir fylgihlutir þeirra á neðri hæð fylgja ekki.
Annað:-Steypt hús
-Hæð í milliloft er um 2,5 metrar.
-Stærð innkeyrsluhurðar er 3,2 metrar á breidd og 3,3 metrar á hæð
-Hvor eignarhluti er um 9 metrar á dýpt og um 7 metrar á breidd
-Gólfhiti er á neðri hæðinni og ofnar á millilofti
-3ja fasa tenglar
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955